2016-05-12 18:00:01 CEST

2016-05-12 18:00:01 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti Englanti
Arion Bank hf. - Fyrirtækjafréttir

Útboð Arion banka á 12, 6 og 5 mánaða víxlum – ARION 170519 ARION 161121 og ARION 161020


Arion banki verður með víxlaútboð þriðjudaginn 17. maí 2016. Um er að ræða
víxla til 12 mánaða, 6 mánaða og 5 mánaða með gjalddaga 19. maí 2017, 21.
nóvember 2016 og 20. október 2016.  Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón
með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið
verdbrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 17. maí en greiðslu- og
uppgjörsdagur er 20. maí 2016. 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskipasviðs
Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.