|
|||
2013-05-22 14:16:11 CEST 2013-05-22 14:17:12 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirAðalmiðlarasamningar og viðskiptavakt vegna skuldabréfaflokka RVK 09 1 og RVK 19 1Reykjavíkurborg semur við Arion banka, Íslandsbanka, Landsbanka, MP banka, og Straum fjárfestingarbanka um viðskiptavakt með skuldabréf Þann 16. maí 2013 samþykkti borgarráð heimild til fjármálastjóra að semja við allt að fimm aðila um viðskiptavakt á skuldabréfaflokkum Reykjavíkurborgar í Kauphöll, þ.e. RVK09 1 og RVK 19 1. Aðalmiðlarasamningar voru undirritaðir þann 17. maí 2013. Markmiðið með samningunum er að styrkja aðgang Reykjavíkurborgar að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. Frá og með 24. maí 2013 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig: „Aðalmiðlara með skuldabréf Reykjavíkurborgar“. Þær eru: Arion banki hf., Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf., MP banki hf., og Straumur fjárfestingarbanki hf. Helstu atriði samningsins eru: -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum Reykjavikurborgar. -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til að leggja fram tilboð að lágmarki 100 m.kr. að nafnverði samanlagt í þá flokka sem í boði eru í hverju útboði, að hámarki þó einu sinni í hverjum mánuði . -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem Reykjavíkurborg veitir. -- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir RVK 09 1 og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 50 m.kr. að nafnvirði í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar. -- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir RVK 19 1 og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 20 m.kr. að nafnvirði í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar. -- Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal aldrei vera meiri en 1%. -- Viðskiptavaki skal endurnýja tilboð innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið. -- Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 150 m.kr. að nafnvirði með RVK 09 1 er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða. -- Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 60 m.kr. að nafnvirði með RVK 19 1 er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða. Viðskiptavakt Arion banka hf., Íslandsbanka hf., Landsbanka hf., MP banka hf., Straums fjárfestingarbanka hf. gildir frá og með 24. maí 2013 til 24.maí 2014. Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 693-9321 |
|||
|