2014-03-25 09:09:37 CET

2014-03-25 09:10:38 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)

Forstjóri Hampiðjunnar segir starfi sínu lausu


Jón Guðmann Pétursson hefur sagt  upp starfi sínu sem forstjóri Hampiðjunnar og
mun láta af störfum í lok maí mánaðar nk. Hann mun verða stjórn og nýjum
forstjóra til ráðgjafar eftir því sem þörf verður á. 

Stjórn félagsins hefur samið við Hjört Erlendsson, framkvæmdastjóra neta og
kaðlaframleiðslu, um að hann taki tímabundið að sér starf forstjóra Hampiðunnar
þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. Hjörtur er 56 ára tæknifræðingur og
hefur verið staðgengill Jóns undanfarin ár. 



Vilhjálmur Vilhjálmsson, stjórnarformaður:

Uppsögn Jóns kom ekki alfarið á óvart því hann hafði orðað hug sinn í þeim
efnum fyrir allnokkru.  Jón hefur verið í lykilhlutverki í Hampiðjunni í langan
tíma og sem forstjóri frá 2001.  Hann hefur leitt endurskipulagningu félagsins
með þeim árangri að síðustu þrjú ár hafa verið þau bestu í 80 ára langri sögu
Hampiðjunnar.  Ég vil þakka honum einstaklega farsælt og gott starf fyrir
Hampiðjuna og óska honum alls hins besta. 



Jón Guðmann Pétursson:

Ég hef í nokkurn tíma haft hug á að eiga minn tíma sjálfur.  Ákvörðun í þeim
efnum hefur dregist vegna ýmissa ástæðna síðustu misserin en nú er rétti tíminn
til að setja punkt.  Hef starfað hjá Hampiðjunni í 27 ár, þar af hálfan tímann
sem forstjóri.  Hampiðjan, sem verður áttatíu ára gömul á næstu dögum, hefur
aldrei staðið betur eða verið verðmætari fyrir hluthafa og því þægilegur tími
að stíga frá borði.