2014-03-25 12:09:39 CET

2014-03-25 12:10:40 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Nýherji hf. - Fyrirtækjafréttir

Nýherji selur starfsemi Applicon í Danmörku


Nýherji hf. hefur selt starfsemi félaganna Applicon A/S og Applicon Solutions
A/S í Danmörku. Kaupandinn er Ciber A/S í Danmörku, sem er hluti af  Ciber Inc.
og er samstæða fyrirtækja á sviði upplýsingatækni (NYSE: CBR). Söluverð er
trúnaðarmál. Salan mun hafa óveruleg áhrif á niðurstöðu rekstrarreiknings
Nýherja hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2014 en mun treysta lausafjárstöðu
félagsins og skerpa áherslur í starfsemi í þess. 

Ciber í Danmörku mun taka yfir rekstur Applicon frá og með 1. apríl nk.
Applicon félögin í Danmörku eru sérhæfð í sölu og ráðgjöf sem tengist SAP
viðskiptahugbúnaði og þróun tengdra hugbúnaðarlausna. Tæplega 40 manns starfa
hjá félögunum. 



Finnur Oddsson forstjóri Nýherja hf:

„Salan á Applicon félögunum í Danmörku eru tímamót fyrir Nýherjasamstæðuna. Við
höfum nú dregið okkur út úr öllum rekstri í Danmörku, en hann hefur ekki gengið
sem skyldi síðustu ár. Ein meginskýringin er sú að lítil sem engin
samlegðaráhrif voru á milli dönsku félaganna annars vegar og félaga Nýherja á
Íslandi og í Svíþjóð hins vegar. 

Við erum afar ánægð með kaup Ciber á starfsemi Applicon félaganna og teljum að
í þeim felist margþættur ávinningur. Þjónustu- og lausnaframboð Applicon fellur
vel að starfsemi Ciber og verður sameinað félag enn betur í stakk búið til að
sinna þörfum kröfuharðra viðskiptavina. Við sjáum einnig tækifæri til samstarfs
milli Ciber og fyrirtækja Nýherja þegar fram líða stundir. 

Nú liggur fyrir að við getum enn betur einbeitt okkur að rekstri Nýherja og TM
Software á Íslandi og árangursríku samstarfi Applicon félaganna á Íslandi og í
Svíþjóð. Við væntum þess að það muni efla enn frekar þjónustu til viðskiptavina
okkar og bæta afkomu samstæðunnar.“ 



Nánari upplýsingar veitir:

Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja (finnur.oddsson@nyherji.is) - s: 862-0310