2017-03-03 13:15:25 CET

2017-03-03 13:15:25 CET


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Reginn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Breytingar hjá Reginn hf. Nýir starfsmenn.


Reginn hefur fengið til liðs við sig eftirfarandi aðila sem þegar hafa hafið
störf hjá félaginu. 

Sunna Hrönn Sigmarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri dótturfélaganna  
Knatthallarinnar ehf. og Kvikmyndahallarinnar ehf. Sunna mun taka sæti í
framkvæmdastjórn Regins. 

Sunna hefur mikla reynslu af stærri og flóknari rekstri tengt fasteignum,
útleigu, þróun og uppbyggingu og mun koma að slíkum verkefnum hjá Regin. Sunna
starfaði áður sem framkvæmdastjóri fasteignasviðs Hörpu tónlistar- og
ráðstefnuhúss frá 2011 þar sem hún hafði umsjón með rekstri, viðhaldi og
útleigu. Auk þessa sat Sunna í framkvæmdaráði Hörpu og Rekstrarfélaginu Stæða
slhf. Einnig starfaði Sunna sem skrifstofustofustjóri Eignarhaldsfélagsins
Portus hf. frá 2006 - 2011. Sunna hefur lokið B.Sc. í iðnaðartæknifræði frá
Háskólanum í Reykjavík árið 2005. 

Breyting þessi á framkvæmdastjórn félagsins er meðal skrefa hjá Reginn til að
styrkja og þróa Egilshöll enn frekar með innri vexti og uppbyggingu til
framtíðar. 

María Rúnarsdóttir hefur verið ráðin sem rekstrar- og þjónustustjóri hjá
Reginn. María starfaði áður sem vörustjóri hjá Olíuverzlun Íslands frá 2013.
María hefur lokið M.Sc. í rekstrarverkfræði frá DTU árið 2012 auk B.Sc. gráðu í
viðskiptafræði með áherslu á tungumál og alþjóðaviðskipti árið 2010. 

María mun hafa umsjón með stýringu og utanumhaldi á þjónustusamningum vegna
reksturs í fasteignum, s.s. ræstinga, þrifa, húsumsjónar, öryggisgæslu,
þjónustuborðs auk þess að vera með utanumhald um húsfélög í fasteignum
félagsins. María mun einnig leiða og byggja upp nýjar og auknar áherslur til
vistvænni fasteignarekstrar í samstarfi við framkvæmdastjóra dótturfélaga. 



Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262