2017-04-27 16:57:49 CEST

2017-04-27 16:57:49 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Afkomutilkynning


Afkomutilkynning: 397 milljóna króna hagnaður Kviku á fyrsta ársfjórðungi

Samkvæmt óendurskoðuðu samstæðuuppgjöri Kviku banka hf. fyrir fyrstu þrjá mánuði
ársins 2017 sem kynnt var á stjórnarfundi í dag nemur hagnaður eftir skatta 397
milljónum króna. Það er betri afkoma en áætlanir bankans gerðu ráð fyrir. Afkoma
fyrstu þrjá mánuði ársins 2017 er allmikið hærri en afkoma bankans á fyrstu
þremur mánuðum ársins 2016 sem nam um 176 milljónum króna.

Starfsemi bankans á fyrsta ársfjórðungi 2017 hefur gengið vel. Eignir í stýringu
námu 131 milljarði króna í lok mars 2017 og hafa vaxið um 10 milljarða króna frá
áramótum. Horfur fyrir starfsemi bankans út árið 2017 eru mjög góðar.

Eigið fé Kviku nam í lok mars 2017 tæplega 7,5 milljörðum króna. Heildareignir
bankans námu 100 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall samstæðu í lok mars 2017
var 19,9% miðað við framangreinda afkomu.

Kvika er skráð fyrir víkjandi skuldabréf hjá Nasdaq Iceland í flokknum KVB
15 01. Skuldabréfin eru til 10 ára og teljast til eiginfjárliðar B. Kvika er
einnig með skráða víxla í flokkunum KVB 16 1221 og KVB 17 0323.


Um Kviku banka hf.

Kvika er eini sjálfstæði og sérhæfði fjárfestingabanki landsins. Bankinn sinnir
þörfum viðskiptavina á afmörkuðum syllum með fagþekkingu og sérhæfðu
vöruframboði. Burðarás Kviku er öflug eignastýring og veitir bankinn sparifjár-
og innlánseigendum alhliða fjármálaþjónustu.

Hjá Kviku starfar samhentur hópur 83 sérfræðinga sem nær árangri í krafti
menntunar, markaðsþekkingar og víðtækrar reynslu. Forstjóri er Sigurður Atli
Jónsson og formaður stjórnar er Þorsteinn Pálsson. Eignarhald Kviku er gagnsætt
og er hann eini bankinn sem er að fullu í eigu einkaaðila s.s. lífeyrissjóða,
fyrirtækja og einstaklinga. Nánar á: www.kvika.is.

[]