2024-09-23 19:39:07 CEST

2024-09-23 19:39:07 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Útgáfa á víxlum - OLGERD241223


Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. hefur lokið sölu á nýjum þriggja mánaða víxli, OLGERD241223 fyrir 860 m.kr. að nafnverði á kjörum sem samsvara 9,90% flötum vöxtum, en víxillinn verður skráður í kauphöll Nasdaq Iceland.

Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var sömuleiðis undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a., c. og d.-liðar 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni. 

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með sölu víxlanna og annast skráningu þeirra. 

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 26. september nk.

Nánari upplýsingar veitir:

Jón Þorsteinn Oddleifsson, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs í síma 820-6491

eða jon.thorsteinn.oddleifsson@olgerdin.is