|
|||
![]() |
|||
2016-10-31 11:01:11 CET 2016-10-31 11:01:11 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Kaup Landsbankans á eigin hlutum á öðru endurkaupatímabiliEins og fram kemur í tilkynningu Landsbankans frá 15. september 2016 hefur bankaráð Landsbankans ákveðið að nýta heimild til kaupa á eigin hlutum í bankanum sem veitt var á aðalfundi bankans 14. apríl 2016. Kaupin, sem fara fram á þremur endurkaupatímabilum, munu nema að hámarki samtals 480 milljónum hluta eða sem nemur 2% af útgefnu hlutafé. Þann 30. september 2016 birti Landsbankinn tilkynningu um kaup á eigin hlutum á fyrsta endurkaupatímabilinu sem stóð yfir frá 19. september 2016 til og með 30. september 2016. Annað endurkaupatímabil stendur yfir frá 31. október 2016 til og með 9. desember 2016. Þeir hluthafar sem ákveða að nýta sér boð Landsbankans um að kaupa hluti af hluthöfum á öðru endurkaupatímabili skulu senda bankanum tilkynningu þar að lútandi og er eyðublað fyrir tilkynninguna aðgengilegt á vef bankans. Þá má finna á vef bankans leiðbeiningar til hluthafa sem vilja selja hluti á öðru endurkaupatímabili. Hluthöfum verður ekki sent bréf vegna boðs bankans um kaup á hlutum á öðru endurkaupatímabili. Tilkynningar verða afgreiddar í þeirri röð sem þær berast bankanum þar til framangreindu hámarki (480 milljónir hluta) verður náð. Verði hámarkinu náð verða frekari tilkynningar því ekki afgreiddar. Samkvæmt árshlutauppgjöri Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2016 er eigið fé sem tilheyrir hluthöfum bankans 251.106.010.127 krónur og útistandandi hlutir 23.661.764.751. Í samræmi við framangreint býðst Landsbankinn því til að kaupa hvern hlut á genginu 10,6123 á öðru endurkaupatímabili. Að loknu öðru endurkaupatímabili mun Landsbankinn upplýsa um heildarfjölda seldra hluta og hvort bankastjóri eða framkvæmdastjórar hjá bankanum hafi selt hluti í bankanum. Gert er ráð fyrir að þriðja endurkaupatímabil verði frá 13. febrúar 2017 til og með 24. febrúar 2017. Nánari upplýsingar veitir Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi Landsbankans. Tölvupóstfangið er runar.palmason@landsbankinn.is. [] |
|||
|