2011-04-08 18:16:54 CEST

2011-04-08 18:17:54 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Fyrirtækjafréttir

Tillaga til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn


Á fundi þann 16. mars 2011 var lánveitendum og eigendum fjármálagerninga sem
útgefnir eru af Reykjaneshöfn kynntar hugmyndir Reykjaneshafnar um mögulegar
leiðir til endurfjármögnunar á skuldum stofnunarinnar. Engar ákvarðanir voru
teknar á fundinum, en óskað eftir viðbrögðum við þeim hugmyndum sem kynntar
voru fyrir 5. apríl. 

Í millitíðinni hefur Reykjaneshöfn að ósk þeirra þriggja lífeyrissjóða sem eru
stærstu kröfuhafarnir að undanskildum Reykjanesbæ og Lánasjóði Sveitarfélaga,
ráðið verðbréfafyrirtækið Arctica Finance hf. til að vera þessum lífeyrissjóðum
til ráðgjafar, sem og öðrum kröfuhöfum sem þess óska. Eftir sem áður mun
verðbréfafyrirtækið Centra Fyrirtækjaráðgjöf hf. vera ráðgjafi Reykjaneshafnar
og hafa með höndum samskipti við kröfuhafa fyrir hennar hönd. 

Í ljósi þeirra viðbragða sem Reykjaneshöfn hafa borist frá kröfuhöfum í kjölfar
fundarins þann 16. mars s.l. vill stofnunin setja fram tillögu um útfærslu á
endurfjármögnun sem felur í sér þá hugsun að „bíða og sjá“, sbr. kynningu frá
16. mars. Tillagan er sú að kröfuhafar endurfjármagni núverandi skuldir
hafnarinnar að hluta til með löngu jafngreiðslubréfi sem fái þjónustu strax, en
að hluti af skuldunum verði settur á styttra bréf sem fái ekki þjónustu fyrr en
eftir tvö ár. Reykjaneshöfn mun hafa burði til að standa við skilmála bréfanna
ef þróunin á næstu árum verður á þann veg sem lýst er í sviðsmynd sem nefnd var
„Grunnviðmið“ í kynningu 16. mars, þ.e. að kísilver verði að veruleika með þeim
áhrifum á atvinnuuppbyggingu á svæðinu sem vænst er að því fylgi. Ákvæði
bréfanna tryggi hagsmuni kröfuhafa og aðkomu þeirra að málum ef þróun er
neikvæð. 

Tillagan gerir ráð fyrir að núverandi fjármálagerningar verði keyptir til baka
á bókfærðri stöðu þeirra og greitt fyrir með löngu bréfi á kröfu sem nemur 100
punktum á HFF 44 og styttra bréfi á kröfu sem nemur 380 punktum á HFF 34.
Hlutföll milli bréfanna tveggja verður með þeim hætti að meðalkrafa nemur 235
punktum. Við verðlagninguna á þessum nýju bréfum var litið til þeirrar
verðlagningar sem hefur tíðkast í skuldabréfaútgáfum hafnarinnar, en meðalálag
við sölu á öllum verðtryggðum núverandi bréfum og lánum Reykjaneshafnar nemur
171 bp og hæsta verð sem höfnin hefur greitt fyrir verðtryggt lánsfé fram að
þessu nemur 235 punktum umfram áhættulausa vexti. Bréfin verða með fulla ábyrgð
sveitarfélagsins. 

Tillagan er útfærð nánar í viðauka.

Óskað er eftir afstöðu lánveitenda og eiganda fjármálagerninga við þessari
tillögu fyrir klukkan tólf á hádegi mánudaginn 18. apríl 2011. Allir
lánveitendur og eigendur fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn,
utan Lánasjóðs Sveitarfélaga, verða að samþykkja tillöguna ef hún á að ná fram
að ganga. 

Tilkynnt verður um afdrif tillögunnar eftir lokun markaða þann 18. apríl 2011.

Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og
hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222.