|
|||
2017-02-23 16:30:39 CET 2017-02-23 16:30:39 CET REGULATED INFORMATION RARIK ohf. - ÁrsreikningurÁrsreikningur RARIK fyrir árið 2016Hagnaður RARIK á árinu 2016 var tveir milljarðar króna. Samkvæmt rekstrarreikningi nam hagnaður ársins 2.040 milljónum króna sem er meira en áætlanir gerðu ráð fyrir, en lækkaði um 8% frá árinu 2015 þegar hagnaður ársins nam 2.220 milljónum króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 5.066 milljónum króna eða 34,5% af veltu ársins, samanborið við 31,3% á árinu 2015. Handbært fé frá rekstri nam 3.487 milljónum króna. Rekstrartekjur hækkuðu um 10,7% frá árinu 2015 og námu 14.670 milljónum króna og rekstrargjöld hækkuðu á milli ára um 6% og námu 11.399 milljónum króna. Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2016 nam 3.271 milljónum króna sem er 31% hækkun frá fyrra ári. Styrking krónunnar og lág verðbólga gerði það að verkum að fjármagnsliðir voru hagstæðari en áætlað var. Hagnaður var því meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur námu um 293 milljónum króna, en á árinu 2015 námu þau 850 milljónum króna. Hlutdeild í tapi Landsnets hf., hlutdeildarfélags RARIK, sem færð er í rekstrarreikning nam 344 milljónum króna á móti hlutdeild í hagnaði að upphæð 903 milljónum á árinu 2015. Samkvæmt efnahagsreikningi námu heildareignir RARIK í árslok 57.722 milljónum króna og lækkuðu um 29 milljónir króna á milli ára. Heildarskuldir námu 21.588 milljónum króna og lækkuðu um 540 milljónir króna frá fyrra ári. Eigið fé var 36.134 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall því 62,6% samanborið við 61,7% í árslok 2015. Fjárfestingar ársins að frádregnu söluandvirði seldra rekstrarfjármuna námu 3.029 milljónum króna, sem er minna en áætlað var en um 597 milljónum króna hærra en árið á undan. Stjórn RARIK ohf. leggur til við aðalfund að greiddar verði 310 milljónir króna í arð til eiganda RARIK sem er Ríkissjóður Íslands. Samstæðuársreikningur RARIK ohf. er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. RARIK tók erlent lán að fjárhæð 3.525 milljónir króna á árinu 2016 til fjármögnunar frekari fjárfestinga í lagningu jarðstrengja. Horfur í rekstri RARIK á árinu 2017 eru góðar. Gert er ráð fyrir að hagnaður ársins verði heldur minni en á árinu 2016 og að fjárfestingar samstæðunnar aukist á milli ára. Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna. 2016 2015 2014 2013 2012 2011 2010 2009 Rekstartekjur 14.670 13.252 12.521 11.793 11.412 10.768 9.694 8.703 Rekstrargjöld 11.399 10.755 9.513 9.108 8.428 8.547 7.907 6.973 Rekstrarhagnaður 3.271 2.497 3.008 2.684 2.984 2.221 1.787 1.731 Fjármunatekjur -293 -850 -748 -867 -1.282 -1.233 56 -1.804 og (fjármagnsgjöld ) Áhrif -344 903 847 491 180 189 802 331 hlutdeildarféla gs Hagnaður/tap 2.634 2.550 3.107 2.309 1.882 1.177 2.646 257 fyrir skatta Tekjuskattur -594 -330 -446 -362 -341 -164 -127 440 Hagnaður (Tap) 2.040 2.220 2.661 1.947 1.541 1.014 2.518 697 Eignir samtals 57.722 57.751 48.536 46.787 44.569 37.262 37.032 35.663 Eigið fé 36.134 35.623 29.495 27.144 25.507 19.327 18.314 15.982 Skuldir 21.588 22.128 19.041 19.643 19.062 17.935 18.718 19.682 Handbært fé frá 3.487 3.587 3.837 3.541 3.257 2.779 2.067 1.847 rekstri Greidd 727 741 649 657 630 623 842 749 vaxtagjöld EBITDA 5.066 4.151 4.719 4.300 4.351 3.520 3.054 2.843 Vaxtaþekja 6,97 5,60 7,27 6,54 6,91 5,65 3,63 3,80 Eiginfjárhlutfal 62,6% 61,7% 60,8% 58,0% 57,2% 51,9% 49,5% 44,8% l Velta EBITDA/Velta 34,5% 31,3% 37,7% 36,5% 38,1% 32,7% 31,5% 32,7% Ársreikningur RARIK 2016 var samþykktur á fundi stjórnar þann 23. febrúar, 2017 og heimilaði stjórn birtingu hans í Kauphöll Íslands. Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000. |
|||
|