2022-08-15 14:00:00 CEST

2022-08-15 14:00:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Marel: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Dagana 6. – 12. ágúst 2022 keypti Marel hf. 29.150 eigin hluti að kaupverði 121.709 evra á Euronext Amsterdam eins og nánar er tilgreint í viðhengi sem og á vefsíðu Marel: marel.com/buyback

Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins á Euronext Amsterdam sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 1. júní 2022 í samræmi við heimild aðalfundar Marel hf. þann 16. mars 2022 til kaupa á eigin bréfum.

Marel hf. átti 18.145.979 eigin hluti fyrir viðskiptin sem nemur 2,35% af útgefnum hlutum í félaginu og átti að þeim loknum 18.175.129 eigin hluti eða sem nemur 2,36% af útgefnum hlutum í félaginu.

Marel hf. hefur keypt samtals 4.000.000 eigin hluti samkvæmt áætlun á Nasdaq Iceland sem nú er lokið og nemur heildarkaupverð þeirra 2.393.302.556 kr. og 470.679 eigin hluti samkvæmt áætluninni á Euronext Amsterdam og nemur heildarkaupverð þeirra EUR 2.077.489.

Endurkaup samkvæmt báðum áætlunum munu nema að hámarki samtals 5.000.000 hlutum, þar af 4.000.000 á Nasdaq Iceland og 1.000.000 á Euronext Amsterdam, eða sem nemur samtals 0,65% af útgefnum hlutum í félaginu. Hámarks heildarkaupvirði endurkaupaáætlunar á Euronext Amsterdam nemur allt að 5.590.000 evrum. Endurkaupaáætlunin á Nasdaq Iceland var í gildi frá 1. júní 2022 og lauk endurkaupum þann 1. júlí þegar hámarksfjölda keyptra hluta var náð. Endurkaupaáætlunin á Euronext Amsterdam er í gildi á tímabilinu 2. júní 2022 til og með 2. september 2022.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052 sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 6/2021. 

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger, sem tilkynnt voru 27. apríl, myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnir fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa yfir 7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Marel velti um 1,4 milljarði evra árið 2021 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan árið 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.


Viðhengi