|
|||
2013-02-27 10:03:31 CET 2013-02-27 10:04:03 CET REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirLýsing dagsett 19.11.2012 - leiðréttingLýsing Fjarskipta hf. sem dagsett er þann 19. nóvember 2012 greinir frá nauðasamningi Teymis hf. sem samþykktur var vorið 2009 og þeim áhrifum sem mögulega eiga eftir að koma fram vegna uppgjörs samningskrafna hans. Þar er sagt frá því að eftir að nauðasamningur var samþykktur, en áður en dómur í málinu gekk, hafi Teymi hf. verið skipt upp í Teymi hf. (nú Advania) annars vegar og Fjarskipti hf. hins vegar, og beri félögin tvö sameiginlega skyldu til uppgjörs allra krafna vegna samningsins, hlutfallslega í samræmi við skiptingarhlutföll í skiptingaráætlun Teymis. Í því samhengi eru tilteknar tveir hópar krafna sem vitað eru að geti haft áhrif á félagið. Annars vegar er þar lýst kröfu Stoða hf. á hendur Advania hf. skv. dómi Hæstaréttar í máli nr. 175/2012 sem féll þann 15. nóvember 2012. Hins vegar kröfur vegna sjö ógreiddra skuldabréfa í skuldabréfaflokki OGVODA 05 1, samtals að fjárhæð kr. 100.150.911, en kröfum vegna skuldabréfanna hefur ekki verið lýst. Samkvæmt því sem fram kemur í lýsingunni myndu samanlagðar óframkomnar kröfur sem Fjarskiptum er kunnugt um fela í sér útgáfu hlutafjár í félaginu að nafnverði kr. 58.401.118 væru þær efndar að fullu. Í lýsingunni kemur einnig fram að Fjarskipti beri 64,85% af heildarfjárhæð sérhverrar óframkominnar kröfu og að sú fjárhæð sem gefa þarf út til handa Stoðum sé að nafnvirði kr. 50.444.134, sem svari til samtals 1,5% þynningar útgefins hlutafjár Fjarskipta. Í ljós hefur komið að framangreint hlutfall sem Fjarskipti bera vegna óframkominna krafna í nauðasamningi Teymis sem og nafnverð hluta sem gefa þarf út til handa Stoðum, tekur mið af tölum sem misritast höfðu í skiptingareikningi Teymis. Réttu skiptingarhlutföllin eru þannig að Fjarskipti bera 65,82% af skuldbindingum Teymis en Advania 34,18% svo sem lesa má út úr öðrum skiptingargögnum, s.s. bókun í fundargerð hluthafafundar þar sem skiptingin er samþykkt endanlega og tilkynningu til Fyrirtækjaskrár RSK. Bera félögin því samsvarandi hlutfall af skuldbindingunni við uppgjör til Stoða. Miðað við rétta skiptingu er nafnverð þess hlutafjár sem gefa þarf út til handa Stoðum hf. kr. 51.197.993. Þar sem sú fjárhæð rúmast innan þeirrar heildarfjárhæðar sem tilgreint er í lýsingunni að gefa þurfi út til uppgjörs ólýstra krafna, þ.e. kr. 58.401.118, telur félagið að þessi misritun hafi ekki verðmyndandi áhrif, enda er fjárhæðin innan þeirra marka sem getið er um í lýsingunni varðandi óframkomnar kröfur. Þar að auki er tilgreining á þynningu útgefins hlutafjár vegna útgáfunnar til handa Stoðum sú sama og tilgreind er í lýsingu, þ.e. 1,5%, sem er það hlutfall sem mesta þýðingu hefur fyrir hlutafé félagsins. Ljóst er að skylda félagsins er sannarlega að bera 65,82% hluta allra óframkominna krafna. Í lýsingunni er jafnframt hafður uppi áskilnaður um að komi frekari kröfur til sem falla undir ákvæði nauðasamnings Teymis, beri félaginu að efna þær kröfur með útgáfu nýs hlutafjár í Fjarskiptum til samræmis við nauðasamning Teymis. Með vísan til alls framangreinds er leiðréttingu á skiptingarhlutfalli og nafnvirði þess hlutafjár sem fyrir liggur að gefa þurfi út til handa Stoðum hf. hér með komið á framfæri. Frekari upplýsingar veitir Guðjón Bjarni Hálfdánarson, regluvörður Vodafone. Netfang: gudjonh@vodafone.is Sími: 6699111 [HUG#1681454] |
|||
|