|
|||
2008-06-02 17:30:14 CEST 2008-06-02 17:31:20 CEST REGULATED INFORMATION Vestmannaeyjabær - Ársreikningur- Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans árið 2007Fyrri umræða um ársreikning Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans vegna ársins 2007 var 2. maí og sú síðari 9. maí 2007. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998, með síðari breytingum, skal ársreikningurinn afgreiddur við tvær umræður í bæjarstjórn og skal fullnaðarafgreiðslu vera lokið fyrir 1. júní ár hvert. Löggiltir endurskoðendur Vestmannaeyjabæjar og skoðunarmenn hafa áritað reikninginn án fyrirvara og skýrsla skoðunarmanna liggur fyrir. Ársreikningurinn er gerður í samræmi við reglugerð nr. 944/2000 um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga. Nánari upplýsingar veita Elliði Vignisson bæjarstjóri og Páll Einarsson fjármálastjóri. |
|||
|