|
|||
![]() |
|||
2024-06-28 13:00:00 CEST 2024-06-28 13:00:03 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki: Útboð sértryggðra skuldabréfa þann 3. júlí 2024Arion banki heldur útboð á sértryggðu skuldabréfaflokkunum ARION CB 27 og ARION CBI 30 miðvikudaginn 3. júlí 2024. Fyrirkomulag útboðs verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta. Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokksins ARION CBI 25 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum í ofangreindu útboði. Hreint verð í skiptiútboðinu er 99,288. Áætlaður uppgjörsdagur er 10. júlí 2024. Greiða skal fyrir flokkana með reiðufé og/eða með skiptum á ARION CBI 25. Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á netfangið skuldabrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 3. júlí 2024. |
|||
|