2008-10-09 02:02:47 CEST

2008-10-09 02:03:43 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir

Moody's lækkar lánshæfiseinkunnir



Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investors Service hefur í dag
lækkað lánshæfiseinkunnir Kaupþings banka hf. Einkunn vegna
langtímaskuldbindinga er lækkuð úr A1 í Baa3, einkunn vegna
fjárhagslega styrkleika (BFSR) er lækkuð úr C- í D+ og einkunn vegna
skammtímaskuldbindinga er lækkuð úr P-1 í P3. Allar einkunnir eru til
athugunar og horfur óljósar.

Nánari upplýsingar:
Guðni Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fjárstýringar, s. 444 6126
Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Samskiptaviðs, s. 444 6112