2008-05-08 15:23:32 CEST

2008-05-08 15:24:32 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel Food Systems hf. - Fyrirtækjafréttir

Kaup Marel Food Systems á Marel Stork Food Systems taka gildi


Kaup Marel Food Systems á Stork Food Systems taka gildi í dag, 8. maí. Tilkynnt
var um kaupsamninginn þann 28. nóvember 2007 og var samningurinn háður
eftirfarandi skilyrðum: 

• Að fyrirhugað yfirtökutilboð London Acquisition N.V. um að kaupa alla hluti í
  Stork N.V. væri skilyrðislaust. 
• Jákvæð umsögn Stork Works Council. 
• Samþykki evrópskra samkeppnisyfirvalda. 

Lýst var yfir þann 17. janúar sl. að yfirtökutilboð London Acqusition N.V. um
að kaupa alla hluti í Stork N. V. væri án skilyrða. Kaupin hlutu jákvæða umsögn
Stork Works Council. Með samþykki evrópskra samkeppnisyfirvalda þann 21. apríl
sl. var öllum skilyrðum kaupsamningsins fullnægt.