|
|||
2013-03-27 17:53:31 CET 2013-03-27 17:54:32 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirSeðlabanki Íslands undirbýr setningu reglna á grundvelli laga um gjaldeyrismál, nr. 87/1992Seðlabanki Íslands undirbýr nú setningu reglna á grundvelli laga um gjaldeyrismál, nr. 87/1992, með síðari breytingum, og laga sem samþykkt voru á Alþingi þann 26. mars sl., um breytingu á lögum um gjaldeyrismál nr. 87/1992. Reglurnar varða meðal annars fjárfestingaheimildir erlendra fjármálafyrirtækja og gagnaskil til Seðlabankans. Drög að reglunum verða send til fjármálafyrirtækja í dag sem hluti af undirbúningi þeirra fyrir þær breytingar sem reglurnar fela í sér varðandi gagnaskil til Seðlabankans. Reglurnar munu ekki fela í sér breytingar á fjárfestingaheimildum frá því sem nú er. |
|||
|