2014-10-23 14:56:41 CEST

2014-10-23 14:57:42 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs september 2014


Vanskil fara enn minnkandi

Í september á þessu ári voru 2.742 heimili i í vanskilum við Íbúðalánasjóð að
meðtöldum lánum í frystingu. Á sama tíma á síðasta ári var sambærilegur fjöldi
heimila 4.230 og fer heimilum í vanskilum því jafnt og þétt fækkandi.
Undirliggjandi lánavirði vanskila fer einnig minnkandi því í september þetta
árið er hlutfall lánavirðis í vanskilum einstaklinga 8,64% af heildarlánum
sjóðsins, en var 12.26% á sama tíma í fyrra. 

297 fullnustueignir hafa bæst í eignasafn Íbúðalánasjóðs frá áramótum, en á
sama tíma hefur sjóðurinn selt 862 eignir, þar af 43 eignir í septembermánuði. 

Þetta og fleira kemur fram í mánaðarskýrslu sjóðsins fyrir september 2014 sem
nú er aðgengileg á heimasíðu Íbúðalánasjóðs.