2012-03-16 10:32:41 CET

2012-03-16 10:33:43 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - Ársreikningur

Ársreikningur 2011 Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum


Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á
Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Eignarhaldið er
breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma. Hlutverk
sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar verkefni
sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi sambandsins
flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga. 



Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500
millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti.
Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem
sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun
hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir
hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu
lánsins og sambandið sér um að innheimta hjá hverju þeirrra hlutdeild í
afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga og standa skil á þeim til
skuldareigenda. Í lok ársins 2011 námu eftirstöðvar lánsins 142,1 millj. kr. og
eftirstöðvar þess voru í fullum skilum. 



Tekjuafgangur sambandsins á árinu 2011 nam um 2,9 milljónum kr. og eigið fé í
lok ársins 2011 nam um 32,1  milljón kr. samkvæmt ársreikningi. Starfsemi
sambandsins var í megninatriðum í samræmi við áætlanir og greiðslur
sveitarfélaganna til sambandsins vegna fjármögnunarverkefna þess voru í skilum. 



Berglind Kristinsdóttir er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum og veitir frekari upplýsingar 

um starfsemi þess og stöðu.