2011-12-20 10:27:14 CET

2011-12-20 10:27:51 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : meðferð á viðskiptavild


Reykjavík, 20. desember 2011:  Í tengslum við samruna Íslandsbanka hf. við Byr
hf. hyggst Íslandsbanki færa niður eignir frá Byr í stofnefnahagsreikningi
sameinaðs banka í samræmi við verðmatsaðferðir bankans. Við þessa niðurfærslu
verður til viðskiptavild vegna mismunar á eignum og skuldum í stofnefnahag og er
sú viðskiptavild byggð á væntum áhrifum samrunans á framtíðar sjóðstreymi
bankans. Stefna bankans er að lágmarka óefnislegar eignir í efnahagsreikningi og
hefur stjórn bankans ákveðið að afskrifa því stærstan hluta viðskiptavildarinnar
strax á árinu 2011. Gera má ráð fyrir að þessi aðgerð hafi í för með sér
gjaldfærslu á fjórða ársfjórðungi 2011 og hefur þar með áhrif á afkomu þess
tímabils. Þessi einskiptiskostnaður hefur þó ekki áhrif á sjóðsstreymi né
lausafjárstöðu bankans. Eiginfjárhlutfall bankans verður eftir sem áður vel yfir
16% lágmarkskröfu Fjármálaeftirlitsins. Þá fellur þessi aðgerð að þeim áætlunum
sem bankinn gerði fyrir samrunann við Byr hf., en eins og áður hefur komið fram
gerir Íslandsbanki ráð fyrir töluverðum samlegðaráhrifum af sameiningu
fyrirtækjanna.

Frekari upplýsingar veitir:

Sigrún Hjartardóttir, fjárfestatengsl, sími. 844-4748, netfang:
sigrun.hjartardottir@islandsbanki.is


[HUG#1572635]