|
|||
![]() |
|||
2015-12-28 16:42:52 CET 2015-12-28 16:42:52 CET REGLERAD INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsREITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ 52. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 540.173 eigin hluti fyrir 44.968.359 kr. eins og hér segir: Dagsetning Tími Keyptir Viðskipta-ve Kaupverð Eigin hlutir eftir hlutir rð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 21.12.2015 13:43 250.000 83,40 20.850.000 9.992.804 -------------------------------------------------------------------------------- 22.12.2015 10:03 85.000 83,40 7.089.000 10.077.804 -------------------------------------------------------------------------------- 23.12.2015 15:29 205.173 83,00 17.029.359 10.282.977 -------------------------------------------------------------------------------- Samtals 540.173 44.968.359 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015. Reitir hafa nú keypt samtals 10.282.977 hluti í félaginu sem samsvarar 30,24% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 799.261.253 krónum. Reitir eiga nú samtals 1,36% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. |
|||
|