|
|||
![]() |
|||
2015-12-28 16:46:56 CET 2015-12-28 16:46:56 CET REGLERAD INFORMATION Íslandssjóðir hf. - FyrirtækjafréttirÍslandssjóðir hf. - Umsókn um töku tiltekinna hlutdeildarskírteina úr viðskiptumÍslandssjóðir hf. hafa óskað eftir að hlutdeildarskírteini eftirfarandi sjóða í rekstri félagsins verði tekin úr viðskiptum á skipulegum verðbréfamarkaði Nasdaq Iceland: 1. Ríkisskuldabréf – Sjóður 5 2. Úrvalsvísitala – Sjóður 6 3. Löng ríkisskuldabréf – Sjóður 7 4. IS Hlutabréfasjóðurinn 5. Sjóður 1 – Skuldabréf (sjóðurinn hefur verið í slitameðferð frá árinu 2010) 6. Sjóður 11 – Fyrirtækjabréf (sjóðurinn hefur verið í slitameðferð frá árinu 2010) Taka umræddra hlutdeildarskírteina úr viðskiptum mun ekki hafa nein áhrif á innlausn þeirra eða innlausnarvirði. Tilkynnt verður um afstöðu Nasdaq Iceland til umsóknarinnar þegar hún liggur fyrir. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri félagsins í síma 440-4593. |
|||
|