2015-02-26 13:15:06 CET

2015-02-26 13:15:07 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
SRE fjármögnun 2 - Ársreikningur

Ársreikningur fagfjárfestasjóðsins SRE fjármögnun 2 vegna ársins 2014


Fagfjárfestasjóðurinn SRE fjármögnun 2 sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út
skuldabréf á árinu 2012, tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið
2014. 

  -- Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi.
  -- Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
  -- Ársreikningurinn var endurskoðaður af Ernst & Young ehf. í samræmi við
     alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að
     ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2014, efnahagi
     hans 31. desember 2014 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2014, í
     samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga
     verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á
heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is 

Nánari upplýsingar um ársreikning SRE fjármögnun 2 veitir Flóki Halldórsson, í
síma 444 7464.