|
|||
2009-05-04 11:12:02 CEST 2009-05-04 11:13:16 CEST REGULATED INFORMATION Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - FyrirtækjafréttirStraumur frestar birtingu ársreiknings4. maí 2009 Þann 19. mars s.l. veitti Héraðsdómur Reykjavíkur Straumi-Burðarási fjárfestingabanka hf. (Straumur) heimild til greiðslustöðvunar sem gildir til 11. júní n.k., sbr. tilkynningu frá Straumi þann 19. mars. Endurskipulagning Straums stendur nú yfir og hefur framkvæmdastjórn bankans fundað með lánveitendum í þeim tilgangi að endurskipuleggja rekstur félagsins og koma nýrri skipan á fjármál þess, sbr. tilkynningar frá Straumi 30. mars og 17. apríl s.l. Vegna stöðu félagsins hefur Fjármálaeftirlitið (FME) veitt Straumi frest til að skila ársreikningi fyrir árið 2008 til loka maí mánaðar. Nánari upplýsingar veitir: Georg Andersen Forstöðumaður Samskiptasviðs S:+354 585 6707 georg@straumur.com |
|||
|