2008-11-18 17:54:37 CET

2008-11-18 17:55:37 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga - Fyrirtækjafréttir

- Frumútboð LSS150224


Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á LSS150224.
Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð allt að 5 milljarðar
króna að nafnvirði. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka
útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.
Eftirfarandi bönkum og verðbréfafyrirtækjum hefur verið boðið að gera tilboð:
Byr Sparisjóður, H.F. Verðbréf, Íslensk verðbréf, Jöklar Verðbréf, NBI, Nýi
Glitnir, Nýi Kaupþing, MP Fjárfestingarbanki, Saga Capital Fjárfestingarbanki,
Sparisjóðabanki Íslands, SPRON Verðbréf, Straumur Fjárfestingarbanki og
Virðing. 

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við eftirfarandi lýsingu:

Útboðsfjárhæð:     5.000.000.000 (fimm milljarðar króna).
Lágmarkstilboð:    100.000.000 (hundrað milljónir króna)
Lánstími:          Til 15. febrúar 2024.
Endurgreiðslur:    Verðtryggðar jafnar hálfsárslegar greiðslur.
Nafnvextir:        Fastir vextir 3,75%.
Grunnvísitala:     Verðtryggt með vísitölu neysluverðs (VNV) október 2008, gildi
                   hennar er 312,8. 
Einingar:          1 kr. rafbréf.
Þóknun:            Lánasjóðurinn greiðir 0,5% þóknun.
Tilboð:            Í tilboði skal taka fram ávöxtunarkröfu án þóknunar,
                   tilboðsfjárhæð og „hreint“ verð án þóknunar. 
Fyrirkomulag:      “Hollensk” uppboðsaðferð þar sem allir tilboðsgjafar fá sömu
                   ávöxtunarkröfu og hæst er tekið. Lánasjóðurinn áskilur sér
                   rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka
                   hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum 
Uppgjör sölu:      Miðvikudaginn 26. nóvember 2008.

Tilboð skulu berast fyrir kl. 17:00, föstudaginn 21. nóvember 2008 til
Lánasjóðs sveitarfélaga, b.t. Óttars Guðjónssonar, Borgartúni 30, 105
Reykjavík, Íslandi. 

Einnig má senda tilboð í tölvupósti til ottar@samband.is eða með myndsendi í
515-4903 á tilboðsdegi. 

Öllum tilboðum verður svarað fyrir kl. 09:30 mánudaginn 24. nóvember 2008.