2016-02-26 10:12:05 CET

2016-02-26 10:12:05 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Spölur ehf. - Ársreikningur

Spölur - Ársuppgjör 1. janúar 2015 til 31. desember 2015


  -- Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir tímabilið 1. janúar 2015 til 31.
     desember 2015 nam 461 mkr., hagnaður á rekstrarárinu 1. janúar 2014 til 31.
     desember 2014 nam 445 mkr. Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á fjórða
     ársfjórðungi félagsins sem er 1. október 2015 til 31. desember 2015 nam 72
     mkr. en á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 56 mkr. Spölur er
     að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf.



  -- Greiðsluflæðið gefur betri mynd af gangi félagsins þar sem verðbætur vegna
     vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka lánstímans, þ.e.
     2018. Greiðslugeta félagsins undanfarin 5 ár hefur verið sterk. Um 700 mkr.
     (2014:643 mkr.) voru greiddar í afborganir og vexti á tímabilinu og
     nauðsynlegt umframfjármagn var að auki til staðar 31. desember 2015 eins og
     lánasamningar gera ráð fyrir.



  -- Veggjald ársins nam 1.197 mkr. til samanburðar við 1.136 mkr. árið áður sem
     er 5,3 % hækkun.



  -- Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrir tímabilið 1. janúar 2015
     til 31.desember 2015 nam 387 mkr. og hækkar um rúma 52 mkr frá árinu áður
     þegar hann nam 335 mkr. Helsta breytingin er vegna aukins viðhaldskostnaðar
     og kjarasamningsbundinna hækkunar á launum.
  -- Afskriftir á árinu námu samtals 124 mkr. og voru á sama tímabili árið áður
     121 mkr.



  -- Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld lækka á milli ára um 15 mkr.



  -- Skuldir Spalar ehf lækka úr 3.101 mkr. þann 31. desember 2014 í 2.646 mkr.
     þann 31. desember 2015.



Um uppgjörið

Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu heldur
meiri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir. 

Tímabilið frá 1. janúar 2015 til 31. desember 2015 er sautjánda fjárhagsár
félagsins. Á þessu tímabili fóru 2.048 þúsund ökutæki um göngin sem greiddu
veggjald sem er um 5,65% aukning frá sama tímabili árið áður. Þessi fjöldi
samsvarar því að um 5.612 ökutæki hafi farið um göngin að meðaltali dag hvern. 

Meðaltekjur fyrir hverja ferð um göngin hafa lækkað.

________________________________________________________________________________
_________________ 

Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma
433 5910.