|
|||
2009-11-02 18:19:23 CET 2009-11-02 18:21:05 CET REGULATED INFORMATION Össur hf. - FyrirtækjafréttirÖssur býður út allt að 29.500.000 hluti á markaðsvirði í lokuðu hlutafjárútboðiEkki til útgáfu eða dreifingar í Ástralíu, Kanada, Japan eða Bandaríkjunum. Fréttatilkynning frá Össuri hf Reykjavik, 2. nóvember 2009 17:15 Stjórn Össurar hf. ("Össur") hefur í dag tekið ákvörðun um að ráðast í takmarkað og lokað útboð ("útboðið") á allt að 29.500.000 nýjum hlutum í Össuri á markaðsverði án forkaupsréttar núverandi hluthafa. Útboðið fer fram á grundvelli söfnunarferlis þar sem boðnir verða að hámarki 29.500.000 hlutir að nafnvirði 1 kr. hver ("nýju hlutirnir"), sem svarar til u.þ.b. 7,0% af útistandandi hlutafé Össurar, að nafnvirði 423.000.000 kr. Útboðsgengið verður ákvarðað að loknu söfnunarferlinu. Miðað við lokgagengið hinn 2. nóvember 2009, sem var DKK 5,2, mun brúttósöluandvirði bréfanna í útboðinu svara til u.þ.b. 153 milljónum DKK (30 milljónir Bandaríkjadala) ef miðað er við að fjárfestar skrifi sig fyrir öllu hlutafénu sem í boði er. Tilgangur útboðsins er að auka fjárhagslegan sveigjanleika félagsins og styrkja grunninn að framtíðarvexti þess. Á undanförnum árum hefur Össur þróast í alþjóðlegt fyrirtæki sem er leiðandi í framleiðslu á stoð- og stuðningsvörum og með sterka markaðshlutdeild á sínum mörkuðum. Félagið á sér sögu um að auka stöðugt verðmæti þeirra vörutegunda sem það framleiðir, bæði með nýsköpun og fyrirtækjakaupum sem styðja við vöxt félagsins. Stjórnendur Össurar telja að langtímahorfur í rekstri félagsins séu mjög góðar. Stöðugt er fylgst með markaðsþróun og fjárfestingartækifærum, en Össur er í góðri stöðu til þess að færa sér í nyt tækifæri sem skapast. Ennfremur hefur Össur hug á að auka flot á bréfum félagsins og bæta þar með seljanleika og verðmyndun bréfanna. Útboðið Útboðið beinist að tilteknum fagfjárfestum og öðrum dönskum og alþjóðlegum fjárfestum. Útboðið beinist ekki að fjárfestum sem hafa búsetu á Íslandi. Í útboðinu hafa núverandi hluthafar Össurar fallið frá forkaupsrétti sínum skv. heimild í 2. mgr. greinar 2.01 í B-lið samþykkta félagsins. SEB Enskilda er umsjónaraðili útboðsins. Áskriftarumsóknir skulu sendar til umsjónaraðilans og öll kaup skulu eiga sér stað hjá honum. Tilboðssöfnunin hefst þegar í stað. Gert er ráð fyrir að verðákvörðun og úthlutun verði tilkynnt svo fljótt sem unnt er að lokinni tilboðssöfnuninni. Ákvörðun stjórnar um hlutafjáraukningu Stjórn Össurar hefur ákveðið að ráðast í útboð á allt að 29.500.000 hlutum, að nafnvirði 1 kr. á hlut. Ákvörðunin um að auka hlutafé félagsins er tekin skv. heimild í samþykktum félagins, 2. mgr. greinar 2.01 í lið B. Bréf tekin til viðskipta og opinber skráning NASDAQ OMX á Íslandi og NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn hafa staðfest að nýju hlutirnir verði teknir til viðskipta og opinberrar skráningar með núverandi ISIN númeri Össurar, IS0000000040. Að lokinni skráningu hlutafjáraukningarinnar hjá fyrirtækjaskrá á Íslandi verður bráðabirgða ISIN-auðkennið IS0000019669 sameinað ISIN númeri bréfa Össurar í Verbréfaskráningu Íslands og hjá VP Securities. Bráðabirgðaauðkenni nýju hlutanna verður ekki tekið til opinberrar skráningar og viðskipta á NASDAQ OMX, heldur verður það aðeins skráð hjá VP Securities til þess að greiða fyrir áskriftum að nýju hlutunum. Áætlaðar tímasetningar í útboðinu Gert er ráð fyrir að útboðsverðið og umfang útboðsins verði tilkynnt á NASDAQ OMX eigi síðar en 3. nóvember 2009. Áætlaður greiðsludagur gegn afhendingu: 6. nóvember 2009 Áætlaður skráningardagur hlutafjáraukningarinnar hjá fyrirtækjaskrá á Íslandi 6. nóvember 2009 Áætlaður dagur, sem hinir nýju hlutir verða teknir til viðskipta og skráningar á NASDAQ OMX með núverandi ISIN númeri: 9. nóvember 2009 Gert er ráð fyrir að flýta megi dagsetningum vegna skráningar og viðskipta nýrra hluta í kauphöll, og greiðslu og skráningar hjá fyrirtækjaskrá ef útboðinu er lokað fyrr en ætlað var. Félagið getur hvenær sem er lokað útboðinu eða framlengt það eftir eigin ákvörðun. Biðtími Félagið hefur fallist á að í 180 daga eftir að nýju hlutirnir hafa verið teknir til viðskipta á NASDAQ OMX muni félagið ekki gefa út eða tilkynna opinberlega um áform um að gefa út nein hlutabréf eða verðbréf, sem eru breytanleg eða skiptanleg í hlutabréf, eða sem fela í sér rétt til þess að skrifa sig fyrir hlutum, án fyrirfram samþykkis umsjónaraðila útboðsins hverju sinni (sem ekki skal synja um slíkt samþykki að ástæðulausu), nema að því leyti sem skylt kann að vera að gefa út slíka hluti skv. íslenskum eða dönskum lögum eða í tengslum við fjárfestingar í fyrirtækjum, enda verði slíkir nýir hlutir ekki umfram 5% af hlutafé félagsins á þeim tíma sem fjárfestingin á sér stað, eða ef starfsmenn nýta sér kauprétt sem þeir hafa öðlast samkvæmt gildandi kaupréttaráætlunum. Nýju hlutirnir Nýju hlutirnir munu njóta réttinda til jafns við fyrri hlutabréfi í Össuri (pari passu). Nýju hlutirnir verða skráðir á nafn eigenda sinna í hlutaskrá félagsins og gefnir út og skráðir hjá Verðbréfaskráningu Íslands og VP Securities. Engum hlutum, þ.m.t. nýjum hlutum, fylgja nú eða munu fylgja nein sérréttindi. Nýju hlutirnir verða framseljanlegir og munu að öllu leyti veita sama rétt og núverandi hlutabréf. Réttindi, sem fylgja nýju hlutunum, þ.m.t. atkvæðaréttur og réttur til arðgreiðslu, munu gilda frá þeim tíma sem hlutafjáraukningin er skráð hjá Fyrirtækjaskrá. Viðskipti með íslenska fjármálagerninga falla nú undir íslenskar reglur um gjaldeyrismál. Seðlabanki Íslands hefur veitt undanþágur frá þessum reglum og leyft tiltekin flutning á hlutabréfum í Össuri og viðskipti með þau. Fjárfestum, sem eiga lögheimili utan Íslands, mun almennt heimilt að eiga frjáls viðskipti með hluti í Össuri, þ.m.t. nýju hlutina, á dönskum markaði. Frekari upplýsingar um leiðir til að flytja bréf í Össuri og eiga viðskipti með þau er að finna á heimasíðu Össurar: www.ossur.com/investors. Skráning hlutabréfa, greiðslumiðlun og uppgjör Hlutabréf í Össuri eru skráð hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf., Laugavegi 182, 105 Reykjavík, og hjá VP Securities A/S, Weidekampsgade 14, DK-2300 Copenhagen S. Viðskipti með hlutabréf í Össuri fara fram undir ISIN númerinu: IS0000000040. Greiðslumiðlun og uppgjör viðskipta með hlutabréf í Össuri, þ.m.t. nýju hlutina, sem eiga sér stað á NASDAQ OMX á Íslandi og NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn, fara fram með milligöngu umsjónaraðila á útgáfu hlutabréfa Össurar á Íslandi og í Danmörku. Nordea Bank Danmark A/S gegnir hlutverki umsjónaraðila að því er varðar hluti í Össuri, þ.m.t. nýju hlutina, sem skráðir eru hjá VP Securities A/S í Danmörk. Skattar og arður Samkvæmt íslenskum lögum ber greiðsla arðs til hlutafélaga almennt 10% staðgreiðsluskatt, en einstaklingar greiða 15%. Hlutafélög í ríkjum innan Evrópusambandsins eða á Evrópska efnahagssvæðinu geta gert kröfu um endurgreiðslu staðgreiðsluskatts, sem innheimtur er. Tvísköttunarsamningar kunna að veita undanþágu eða afslátt frá staðgreiðsluskatti. Fjárfestar eru hvattir til þess að leggja eigið mat á skattalegar afleiðingar af því að fjárfesta í hlutabréfum í Össuri. Aðrar upplýsingar Össur er almenningshlutafélag sem stofnað er og skráð skv. íslenskum lögum með kennitöluna 560271-0189. Fjárhagsár Össurar er almanaksárið. Upplýsingar um Össur hf. er að finna á heimasíðu félagsins: www.ossur.com/investors Nánari upplýsingar veita: Jón Sigurðsson, forstjóri, sími 515 1300 Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515 1300 Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664-1044 ***** Tilynning þessi er ekki tilboð um sölu verðbréfa í Bandaríkjunum. Verðbréf má ekki bjóða til sölu eða selja í Bandaríkjunum án skráningar eða undanþágu skv. bandarískum verðbréfalögum frá 1933, með áorðnum breytingum. Útgefandi verðbréfanna hefur ekki skráð og hefur ekki áform um að skrá neinn hluta útboðsins í Bandaríkjum og hyggst ekki bjóða út verðbréf opinberlega í Bandaríkjunum. Tilkynningu þessari er aðeins dreift til og beinist aðeins til (i) aðila utan Bretlandseyja eða (ii) aðila sem eru fagfjárfestar í skilningi e-liðar 1. mgr. 2. gr. tilskipunar 2003/71/EB ("Evróputilskipunarinnar um útboðs- og skráningarlýsingar") og sem eru annað hvort (x) fagfjárfestar sem falla undir 5. mgr. 19. gr. breskra laga um fjármálaþjónustu og markaði frá árinu 2000 ("the Financial Services and Markets Act 205 (Financial Promotion) Order 2005") eða (y) fjársterk fyrirtæki, svo og til annarra sem heimilt er að lögum að dreifa skjalinu til og falla undir a - d-liði 2. mgr. 49. gr. fyrrnefndra laga (en allir þeir aðilar sem nefndir eru í liðum (i) og (ii) hér að framan eru sameiginlega nefndir "viðeigandi aðilar". Hinir nýju hlutir eru aðeins falir viðeigandi aðilum og aðeins verður gengið að boðum, tilboðum eða samningum viðeigandi aðila um að skrifa sig fyrir, kaupa eða eignast verðbréfin með öðrum hætti. Aðili, sem ekki er viðeigandi aðili, ætti ekki að gera neinar ráðstafanir á grundvelli þessa skjals eða reiða sig á neinn hátt á efni þess. Tilkynning þessi er auglýsing og telst ekki útboðs- eða skráningarlýsing í skilningi Evróputilskipunarinnar um útboðs- og skráningarlýsingar ásamt hvers kyns gerðum til innleiðingar hennar í viðkomandi aðildarríkjum samkvæmt henni. Í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, sem innleitt hafa Evróputilskipunina um útboðs- og skráningarlýsingar, er orðsendingu þessari aðeins beint til fjárfesta í viðkomandi aðildarríki sem teljast fagfjárfestar í skilningi tilskipunarinnar og á hún aðeins erindi við slíka fjárfesta. ***** Í tilkynningu þessari er að finna tilteknar yfirlýsingar þar sem horft er til framtíðar, þ.m.t. yfirlýsingar um viðskipti félagsins og útboðið. Slíkar yfirlýsingar byggjast á upplýsingum, ályktunum og áætlunum sem af hálfu félagsins eru taldar raunhæfar. Þær kunna að breytast eða vera breytt vegna óvissu sem tengist efnahagslegu og fjárhagslegu umhverfi félagsins, ásamt lagalegum atriðum og markaðsaðstæðum. Að auki kunna viðskipti félagsins og geta þess til þess að ná markmiðum sínum að verða fyrir neikvæðum áhrifum ef einn eða fleiri af þeim áhættuþáttum koma fram, sem lýst er í samantektarskjalinu sem tekið var saman í tengslum við skráningu hlutabréfa Össurar á NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn, svo og í kaflanum sem ber yfirskriftina "Áhættuþættir" í árskýrslu Össurar fyrir 2008, eða ef aðrir áhættuþættir koma fram, sem ekki eru fyrirséðir á þessari stundu eða taldir eru óverulegir. Félagið skuldbindur sig ekki til þess að ná markmiðum sínum, né tekur það neina ábyrgð á því að það muni gerast. Fjárfestar eru sér í lagi hvattir til að gefa sérstakan gaum að þeim áhættuþáttum sem lýst er í samantektarskjalinu sem tekið var saman í tengslum við skráningu hlutabréfa Össurar á NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn, ásamt kaflanum um áhættuþætti í ársskýrslu Össurar fyrir árið 2008. |
|||
|