|
|||
![]() |
|||
2015-12-01 12:34:07 CET 2015-12-01 12:34:07 CET REGULATED INFORMATION Landsbréf hf. - FyrirtækjafréttirBreyting á reglum verðbréfasjóðsins/kauphallarsjóðsins Landsbréf LEQ UCITS ETF (áður Landsbréf LEQ)Fjármálaeftirlitið hefur staðfest breytingar á reglum verðbréfasjóðsins/kauphallarsjóðsins Landsbréf LEQ UCITS ETF, kt. 681212-9300, sem áður höfðu verið samþykktar í stjórn Landsbréfa hf. rekstrarfélagi sjóðsins. Reglubreytingar, sem gerðar eru í samræmi við leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlitsins nr. 1/2015, koma til framkvæmda frá og með deginum í dag. Breytingarnar eru þessar helstar: -- Heiti sjóðsins er breytt í Landsbréf LEQ UCITS ETF (var áður Landsbréf LEQ) -- Upptalning útvistaðra verkefna rekstrarfélags hefur verið uppfærð -- Uppgjör umsýsluþóknunar fer fram mánaðarlega, en var ársfjórðungslega áður -- Aukin umfjöllun um viðskipti með hlutdeildarskírteini á frummarkaði í samræmi við leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlitins nr. 1/2015, um starfsemi vísitölusjóða og kauphallarsjóða. -- Umfjöllun um samruna sjóða er breytt í samræmi við lagabreytingar. Meðfylgjandi eru hinar nýju reglur sjóðsins, en frekari upplýsingar svo sem útboðslýsingu og lykilupplýsingar má finna á vef Landsbréfa hf. (www.landsbref.is). Frekari upplýsingar veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri, í síma 410 2500. |
|||
|