|
|||
![]() |
|||
2015-12-01 17:01:01 CET 2015-12-01 17:01:01 CET REGULATED INFORMATION FÍ Fasteignafélag slhf. - FyrirtækjafréttirFÍ fasteignafélag slhf. hefur skrifað undir kaupsamning um kaup á hluta af fasteigninni Bankastræti 7 í 101 ReykjavíkÍ dag var skrifað undir kaupsamning um kaup FÍ fasteignafélags slhf á hluta fasteignarinnar Bankastræti 7. Um er að ræða jarðhæð og kjallara. Seljandi er Bankastræti fasteignafélag ehf. kt. 470208-0740. Þessi hluti fasteignarinnar Bankastræti 7 er verslunarhúsnæði sem er 811,6 fermetrar að stærð . Kaupverð er 476,5 mkr og verða fjármögnuð með eigin fé og stækkun á skuldabréfaflokki félagsins FIF 13 01. Fjárfestingin fellur vel að fjárfestingarstefnu félagsins m.t.t staðsetningu og leigutíma. Leigutaki í Bankastrætinu er verslun Cintamani og er húsnæðið því 100% útleigt. Leigusamningur er til 6 ára. Með kaupunum á Bankastræti 3 þá aukast leigutekjur félagsins um 40 mkr á ári og EBITDA félagsins um 7% á ársgrundvelli. Gert er ráð fyrir að afhending eignarinnar til FÍ verði í byrjun árs 2016. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri FÍ, Örn V. Kjartansson s. 8259000, orn@fifasteignir.is |
|||
|