2015-12-01 18:00:00 CET

2015-12-01 18:00:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fljótsdalshérað - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs 2016 og þriggja ára áætlun 2017 – 2019


Fjárhagsáætlun ársins 2016 og þriggja ára áætlun 2019 – 2019 er til seinni
umræðu í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs í dag, þriðjudaginn 1. desember með þeim
breytingum frá fyrri umræðu sem bæjarráð hefur lagt til að verði samþykktar. 



Helstu breytingar eru þær að launakostnaður hækkar um 30 millj. kr. þar sem
almennt er verið að gera ráð fyrir 7,5% hækkun launakostnaðar.   Eins er
verðbólguspá lækkuð í 3,2% á árinu 2016 í stað 4,3% og er í samræmi við nýjustu
þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. 



Þriggja ára áætlun er hluti af  áætluninni og samkvæmt henni mun skuldaviðmið
samstæðu A og B hluta árið 2019 fara niður fyrir 150% sem er í samræmi við þá
aðlögunaráætlun sem samþykkt var árið 2012 og lögð fyrir eftirlitsnefnd um
fjármál sveitarfélaga á sínum tíma  Áætlað er að skuldahlutfall A hluta fari
niður fyrir 150%  þegar á árinu 2016. 



Að öðru leiti vísað til skýringa sem fram koma í áætluninni.

Heildaratlun 2016.pdf