2015-12-02 14:12:11 CET

2015-12-02 14:12:11 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf.: Niðurstöður viðbótarútgáfu ISLA CB 23


Samkvæmt 2. gr. samnings Íslandsbanka hf. við Arion banka hf., Kviku banka hf.
og Landsbankann hf. um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum bankans stendur
viðskiptavökum til boða að kaupa allt að 10% af nafnverði þess sem selt er í
útboði til viðskiptavaka á útboðsverði til kl. 12 næsta virka dag.

Í gær lauk Íslandsbanki útboði á sértryggðum skuldabréfum. Að þessu sinni nýttu
viðskiptavakar sér kauprétt í ISLA CB 23 fyrir 20 m.kr. að nafnvirði á
útboðskröfunni 6,90% sem jafngildir verðinu 97,6700. Heildarstærð ISLA CB 23
eftir útboðið er nú 6,88 ma. kr. og heildarupphæð útistandandi sértryggðra
skuldabréfa Íslandsbanka verður 51,52 ma. kr. Stefnt er að töku bréfanna til
viðskipta í Nasdaq Iceland þann 8. desember.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma
    440 3187/ 844 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[HUG#1970856]