2012-08-31 13:45:57 CEST

2012-08-31 13:46:57 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Byggðastofnun - Ársreikningur

Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar - júní 2012


Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar til júní 2012, var
staðfestur af stjórn stofnunarinnar 31. ágúst 2012. 

Tap tímabilsins nam 206,4 mkr.  Til samanburðar nam hagnaður sama tímabils 2011
14,8 mkr. 

Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar
til júní 2012 

  -- Tap stofnunarinnar á tímabilinu nam 206,4 mkr.
  -- Hreinar vaxtatekjur voru 317 mkr. eða 44,8% af vaxtatekjum, samanborið við
     332 mkr. (47,5% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur á sama tímabili 2011.
  -- Almenn rekstrargjöld námu 252,5 mkr., samanborið við 239,3 mkr. á sama
     tímabili 2011
  -- Framlög í afskriftarreikning útlána, og matsbreyting hlutafjár nam 339 mkr.
     en voru 274 mkr. 2011
  -- Eignir námu 16.959 mkr. og hafa lækkað um 690 mkr. frá áramótum.  Þar af
     voru útlán og fullnustueignir 13.861 mkr.
  -- Skuldir námu 15.149 mkr. og hafa lækkað um  2.234 mkr. frá áramótum.
  -- Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 226 mkr. 
  -- Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki er 10,12% en skal að
     lágmarki vera 8%

Um árshlutareikninginn

Tap tímabilsins tímabilsins nam 206,4 mkr. samanborið við 14,8 mkr. hagnað á
sama tímabili 2011.  Skýrist þetta fyrst og fremst með gengistapi upp á 104 mkr
í stað 42 mkr. gengishagnaðar 2011 og hærri framlögum í afskriftarreikning
útlána.  Framlög á afskriftarreikning útlána námu 339 mkr. samanborið við 274
mkr. á sama tímabili 2011.  Muninn má rekja til sölu stórrar fullnustueignar
fyrir nokkuð lægra verð en gert hafði verið ráð fyrir. 

Alþingi samþykkti í fjárlögum 2012 heimild til að efla eigið fé Byggðastofnunar
um allt að 2.000 milljónir króna.  Af því framlagi voru 1.750 milljónir króna
greiddar  til stofnunarinnar í janúar 2012.  Við þetta framlag uppfyllti
stofnunin kröfur um 8% eiginfjárhlutfall. Eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar er
nú 10,12%. 

Horfur

Fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra er nú rekið mál  þar sem tekist er á um
lögmæti erlendra lána sem stofnunin hefur veitt viðskiptavinum sínum og hvort
þau teljist lögmæt lán í erlendri mynt eða ólögmæt gengislán.   Gert er ráð
fyrir að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar á hvorn veginn sem dæmt verður. 
Vænta má að niðurstaða Hæstaréttar hafi fordæmisgildi varðandi aðra
lánasamninga stofnunarinnar í erlendum myntum.  Verði niðurstaðan sú að
samningarnir séu ólögmætir og lánin skuli endurreiknuð mun það hafa veruleg
áhrif á útlánasafn stofnunarinnar. Það er álit Byggðastofnunar og lögmanna
hennar að skuldabréf stofnunarinnar séu lán í erlendri mynt en ekki ólögmæt
gengislán. 


         Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri
Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is