2024-07-24 18:00:00 CEST

2024-07-24 18:00:07 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.

Marel: Uppgjör 2F 2024


Marel kynnir afkomu annars ársfjórðungs 2024 (allar upphæðir eru í evrum)

Meginatriði

  • EBIT framlegð var 9,1% á öðrum ársfjórðungi sem er hækkun frá síðasta ársfjórðungi og á milli ára.
  • Mótteknar pantanir voru lágar, hlutfall pantana á móti tekjum (e. book-to-bill) var 0,95 og pantanabók samsvarar 32% af tekjum síðustu tólf mánaða.
  • Búist er við aukningu í mótteknum pöntunum á síðari árshelmingi sem byggist á batnandi horfum og batamerkjum í rekstrarumhverfi viðskiptavina. Þörf er á frekari vexti pantanabókar til að styðja við tekjuvöxt og bætta rekstrarafkomu.
  • Áframhaldandi áhersla á að lækka kostnaðargrunn með aðhaldi í kostnaði og bætta skilvirkni í framleiðslu og starfsmannahaldi.
  • Skuldahlutfall hækkaði í 3,9x, aðallega vegna óhagstæðrar þróunar hreinna veltufjármuna. Skuldahlutfallið er vel innan marka samkvæmt lánaskilmálum sem var 4,5x að hámarki á öðrum ársfjórðungi.
  • Horfur félagsins fyrir árið 2024 hafa verið uppfærðar og er nú reiknað með hóflegum (e. low single digit) samdrætti tekna á árinu, að EBITDA verði á bilinu 13-14% og EBIT verði á bilinu 9-10%.

Helstu atriði í afkomu á öðrum ársfjórðungi 2024 (2F24)

  • Pantanir námu 393,4 milljónum evra (1F24: 392,8m, 2F23: 406,5m).
  • Pantanabókin stóð í 538,5 milljónum evra (1F24: 560,3m, 2F23: 574,5m).
  • Tekjur voru 415,2 milljónir evra (1F24: 412,6m, 2F23: 422,4m).
  • Hlutfall pantana á móti tekjum (e. Book-to-bill) var 0,95 og hlutfall pantanabókar samsvaraði 32% af tekjum síðustu tólf mánaða.
  • EBITDA[1] nam 53,8 milljónum evra (1F24: 48,1m, 2F23: 49,9m) sem var 13,0% af tekjum (1F24: 11,7%, 2F23: 11,8%).
  • EBIT[1] nam 37,7 milljónum evra (1F24: 32,8m, 2F23: 33,8m) sem var 9,1% af tekjum (1F24: 7,9%, 2F23: 8,0%).
  • Hagnaður nam 2,1 milljónum evra (1F24: -3,2m, 2F23: 3,1m).
  • Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta var -4,0 milljónir evra (1F24: 26,2m, 2F23: 27,1m).
  • Frjálst sjóðstreymi var -22,0 milljónir evra (1F24: 11,2m, 2F23: -6,1m).
  • Skuldahlutfall[2] (nettó skuldir/EBITDA) var 3,9x í lok júní (1F24: 3,8x, 2F23: 3,4x).

Helstu atriði á afkomu á fyrri helmingi ársins 2024 (1H24):

  • Pantanir námu 786,2 milljónum evra (1H23: 769,1m).
  • Tekjur voru 827,8 milljónir evra (1H23: 869,8m).
  • EBITDA[1] nam 101,9 milljónum evra (1H23: 106,4m) sem var 12,3% af tekjum tímabilsins (1H23: 12,2%).
  • EBIT[1] nam 70,5 milljónum evra (1H23: 74,0m) sem var 8,5% af tekjum tímabilsins (1H23: 8,5%).
  • Tap nam 1,1 milljón evra á tímabilinu (Hagnaður 1H23: 12,2m).
  • Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta var 22,2 milljónir evra (1H23: 61,4m).
  • Frjálst sjóðstreymi var -10,8 milljónir evra (1H23: -6,4m).


[1] Rekstrarniðurstaða og EBITDA aðlöguð fyrir afskrift á óefnislegum eignum tengdum yfirtökum (PPA), kostnaði tengdum yfirtökum og einskiptiskostnaði vegna endurskipulagningar. Á fjórða ársfjórðungi 2023 og fyrsta ársfjórðungi 2024 er rekstrarniðurstaða jafnframt leiðrétt fyrir kostnaði tengdum endurskipulagningu á vöruframboði félagsins.
[2] Nettó skuldir (án leiguskuldbindinga) / Pro forma leiðrétt EBITDA síðustu 12 mánaða (að yfirteknum félögum meðtöldum) án óreglulegra liða samkvæmt lánasamningum Marel.

Finna má ítarlegri umfjöllun um rekstur og afkomu félagsins í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar sem finna má í viðhengi (íslenska útgáfan veitir aðeins stutt yfirlit yfir helstu þætti uppgjörsins, horfur, fjárfestafund og fjárhagsdagatal).

Árni Sigurðsson, forstjóri Marel:

Það er ánægjulegt að sjá bætta rekstrarframlegð á milli ársfjórðunga í kjölfar þeirra aðgerða sem við höfum farið í til að bæta reksturinn. Rekstrarumhverfið er áfram krefjandi og litað af óvissu sem endurspeglast í lægri mótteknum pöntunum. Við erum hins vegar viss um að rekstrarskilyrði viðskiptavina okkar fari batnandi sem muni skila sér í auknum pöntunum á seinni helmingi ársins, sérstaklega undir lok þessa árs og inn á það næsta. Í ljósi þess hve fyrri hluti árs fer rólega af stað gerum við nú ráð fyrir hóflegum samdrætti tekna á yfirstandandi rekstrarári og að EBITDA framlegð ársins verði 13-14% og EBIT framlegð 9-10%. Til lengri tíma litið og eftir því sem horfur fara batnandi, er ég sannfærður um að leiðandi staða Marel á þeim vaxtarmörkuðum sem félagið starfar og skýr stefna félagsins muni tryggja að markmið okkar til meðallangs tíma náist.

Samhliða daglegum rekstri hefur margt mikilvægt gerst á fjórðungnum í tengslum við mögulega sameiningu við JBT en undir lok júní lagði JBT fram valfrjálst yfirtökutilboð í alla hluti í Marel. Við væntum þess að viðskiptin gangi í gegn fyrir lok árs og horfum björtum augum á sameiningu félaganna í því augnamiði að bæta þjónustu við viðskiptavini með hagsmuni allra haghafa að leiðarljósi. Ég vil þakka hinu frábæra starfsfólki Marel um allan heim fyrir sitt mikilvæga starf og áræðni í síbreytilegu rekstrarumhverfi. Saman vinnum við ótrauð áfram að markmiðum okkar og þeirri framtíðarsýn að umbylta matvælavinnslu á heimsvísu.

Áframhaldandi óvissa til skemmri tíma, uppfærðar horfur fyrir rekstrarárið 2024

Markaðsaðstæður eru áfram krefjandi í ljósi spennu á alþjóðavettvangi, verðbólgu og hárra vaxta sem skapar áframhaldandi óvissu til skemmri tíma. Þetta endurspeglast í lægri mótteknum pöntunum á fyrri hluta árs sem voru undir væntingum.

Gert er ráð fyrir bata í mótteknum pöntunum á seinni helmingi ársins í ljósi betri horfa á markaði og rekstrarskilyrða viðskiptavina okkar, sérstaklega í alifuglaiðnaði. Til að ná fram vexti í tekjum og bættri afkomu þarf að byggja upp pantanabók félagsins.

Í ljósi þróunar á fyrri árshelmingi hefur Marel endurskoðað horfur sínar fyrir rekstrarárið 2024 og reiknar nú með hóflegum (e. low single digit) samdrætti í tekjum, að EBITDA framlegð ársins verði á bilinu 13-14% og EBIT framlegð verði á bilinu 9-10%.

Til meðallangs tíma litið eru horfur óbreyttar. Skortur á vinnuafli og hækkun launakostnaðar hjá viðskiptavinum okkar samhliða aukinni áherslu á sjálfvirkni, róbótatækni og stafrænar lausnir sem tryggja örugg matvæli sem unnin eru á sjálfbæran hátt, munu halda áfram að styðja við vaxtarhorfur félagsins til lengri tíma litið.

Afkomufundur með markaðsaðilum – beint streymi

Fimmtudaginn 25. júlí 2024 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur í beinu streymi fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Þar munu Árni Sigurðsson forstjóri og Sebastiaan Boelen fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á öðrum ársfjórðungi.

Athugið að fundurinn verður eingöngu rafrænn. Fundinum verður streymt beint á Zoom og upptaka af fundinum verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn.

Skráning fer fram hér. 

Fjárhagsdagatal

  • 3F 2024 – 30. október 2024
  • 4F 2024 – 12. febrúar 2025
  • Aðalfundur – 26. mars 2025