2014-02-28 17:56:57 CET

2014-02-28 17:57:58 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel hf. - Fyrirtækjafréttir

Marel hf. – Framboð til stjórnar á aðalfundi félagsins 5. mars 2014


Eftirtaldir sjö aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn Marel hf. á aðalfundi
félagsins, sem haldinn verður miðvikudaginn 5. mars næstkomandi kl. 16:00, í
höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ: 



Ann Elizabeth Savage, Spalding, Englandi

Arnar Þór Másson, Reykjavík

Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Reykjavík

Ástvaldur Jóhannsson, Reykjavík

Helgi Magnússon, Seltjarnarnes

Margrét Jónsdóttir, Seltjarnarnes

Ólafur Steinn Guðmundsson, Princeton, New Jersey, Bandaríkjunum



Frekari upplýsingar um framangreinda aðila munu verða aðgengilegar á
upplýsingasíðu aðalfundar 2014 á heimasíðu félagsins: http://www.marel.com/agm,
eigi síðar en 2 dögum fyrir fundinn. 



Framboðsfrestur er nú runninn út. Samþykktir félagsins kveða á um að fjöldi
stjórnarmanna skuli vera 7-9 og liggur fyrir tillaga frá stjórn félagsins um að
fjölda stjórnarmanna í samþykktunum verði breytt í 5-7. Verða framangreindir
sjö aðilar þ.a.l. sjálfkjörnir í stjórn félagsins á komandi aðalfundi án
sérstakrar atkvæðagreiðslu.