2008-05-30 12:00:33 CEST

2008-05-30 12:01:39 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir

Samningaviðræður Kaupþings og SPRON halda áfram



Kaupþing banki og SPRON hafa ákveðið að framlengja samningaviðræður
um sameiningu félaganna.  Viðræður ganga vel og verður greint frá
niðurstöðu þeirra eins skjótt og kostur er.

Sameining félaganna er háð samþykki hluthafafundar SPRON, stjórnar
Kaupþings, Fjármálaeftirlitsins, Samkeppniseftirlitsins og
lánveitenda félaganna.

Nánari upplýsingar veitir Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings á
Íslandi, í síma 444-6121