2011-03-29 17:15:00 CEST

2011-03-29 17:15:03 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Orkuveita Reykjavíkur - Ársreikningur

Ársreikningur Orkuveitu Reykjavíkur 2010



Ársreikningur samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur (OR) fyrir árið 2010 var
samþykktur á fundi stjórnar í dag. 

Stjórn hefur ákveðið, í samstarfi við eigendur fyrirtækisins, að grípa til
aðgerða til að tryggja fjármögnun þess. Tilefni þeirra er sá lausafjárskortur
sem blasti við í rekstri OR. Við honum er brugðist með samdrætti og frestun
fjárfestinga, hagræðingu, sölu eigna, hækkun gjaldskrár og víkjandi lánum frá
eigendum fyrirtækisins. Með aðgerðunum er fjárþörf OR á árabilinu 2011-2016
brúuð. Send er út sérstök tilkynning um aðgerðirnar. 

Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla.

Bjarni Bjarnason, forstjóri OR:

„Orkuveita Reykjavíkur þarf að breyta áherslum í rekstri og einbeita sér að
kjarnahlutverki sínu, veitustarfseminni. Sú erfiða fjárhagsstaða sem fyrirtækið
er í er til marks um þörfina á breytingum..“ 

Helstu niðurstöður ársins 2010

Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur skilaði 13.729 milljóna króna hagnaði árið 2010
samanborið við 2.516 milljóna króna tap á árinu 2009. 

Rekstrartekjur ársins námu 27.916 milljónum króna en voru 26.013 milljónir
króna árið áður. 

Hagnaður fyrirtækisins fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, var
13.951 milljón króna samanborið við 12.970 milljónir króna árið áður. 

Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 10.753 milljónir króna á árinu, en voru
neikvæðir um 8.843 milljónir króna árið 2009. 

Heildareignir þann 31. desember 2010 voru 286.540 milljónir króna en voru
281.526 milljónir króna 31. desember 2009. 

Eigið fé þann 31. desember 2010 var 52.847 milljónir króna en var 40.657
milljónir króna 31. desember 2009. 

Heildarskuldir fyrirtækisins þann 31. desember 2010 voru 233.694 milljónir
króna en voru 240.868 milljónir króna í árslok 2009. 

Eiginfjárhlutfall var 18,4% þann 31. desember 2010 en var 14,4% í árslok 2009.



Ýmis mál og horfur

Stjórn OR samþykkti í ágúst 2010 að treysta tekjustraum fyrirtækisins með
hækkun gjaldskrár og mörkun gjaldskrárstefnu ásamt hagræðingu í rekstri. Þá
tilkynnti fyrirtækið í dag um aðgerðaáætlun OR og eigenda vegna fjárhagsvanda
fyrirtækisins og nær hún til áranna 2011-2016. 

Áformað er að ljúka smíði Hellisheiðarvirkjunar á árinu 2011 og taka í notkun
5. áfanga hennar, framleiðslu á 90 MW rafafls, síðla árs. 

Nánari upplýsingar veitir Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, í
síma 516-7707. 





Orkuveita Reykjavíkur - ársreikningur                     
Allar tölur eru í milljónum kr.                           
Rekstrarreikningur                        2010        2009
Rekstrartekjur                          27.916      26.013
Rekstrargjöld                         (13.964)    (13.042)
Rekstrarhagn. f. afskr. (EBIDTA)        13.951      12.970
Afskriftir                             (7.962)     (7.814)
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)      10.753     (8.843)
Áhrif hlutdeildarfélaga                     24       (228)
Hagnaður (tap) fyrir skatta             16.766     (3.914)
Tekjuskattur                           (3.037)       1.398
Hagnaður (tap) ársins                   13.729     (2.516)
Skipting hagnaðar (taps)                                  
Eigendur móðurfyrirtækisins             13.729     (2.539)
Hlutdeild minnihluta                         0          23
Hagnaður (tap) ársins                   13.729     (2.516)
Handbært fé frá rekstri                 11.588       8.429
Efnahagsreikningur                  31.12.2010  31.12.2009
Fastafjármunir                         278.270     272.927
Veltufjármunir                           8.270       8.598
Eignir                                 286.540     281.526
Eigið fé                                52.847      40.657
Langtímaskuldir og skuldbindingar      212.162     221.780
Skammtímaskuldir                        21.531      19.088
Eigið fé og skuldir                    286.540     281.526
Kennitölur                                                
Veltufjárhlutfall                         0,38        0,45
Eiginfjárhlutfall                        18,4%       14,4%

         Bjarni Bjarnason forstjóri OR. Sími: 516 7707