2009-11-16 15:40:02 CET

2009-11-16 15:41:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Hitaveita Suðurnesja - Ársreikningur

- Árshlutareikningur 30. september 2009


HS Orka hf. kynnir hækkun í afkomu og eiginfjárhlutfalli			
HS Orka hf. - Árshlutareikningur 30. september 2009				
Árshlutareikningur HS Orku hf. var samþykktur á fundi stjórnar í dag, 16.
nóvember 2009.				 
Vegna sérstakra aðstæðna og að beiðni hlutahafa birtir félagið nú 9 mánaða
uppgjör en hefur hingað til eingöngu birt ársuppgjör og hálfsársuppgjör.				 
Helstu atriði				
Heildarafkoman var á tímabilinu jákvæð um 2.641 m.kr. 				
Eiginfjárhlutfall var 23,0% en var 16,3% í upphafi ársins. 				
Frá upphafi reikningsskilatímabilsins hefur álverð hækkað þannig að
framtíðarvirði álverssamninga (gangvirðisbreytingar innbyggðra afleiða) hefur
hækkað um rúmlega 2,2 milljarða. Á móti kemur gengistap á sama tíma um  1,2 
milljarða kr.
Birtar samanburðarfjárhæðir eru 12 mánaða tímabil 2008 en ekki 9 mánaða og eru
því ekki samanburðarhæfar. Þetta orsakast af erfiðleikum við að útbúa
samanburðarfjárhæðir fyrir fyrstu 9 mánuði ársins 2008 þar sem félaginu var
skipt í tvö félög í desember 2008. Þar sem HS Veitur hf. tóku yfir
sérleyfisstarfssemi Hitaveitu Suðurnesja hf. Starfsemi sem nú tilheyrir HS
Veitum hf. er birt sem aflögð starfsemi í birtum samanburðartölum í
árshlutareikningi félagsins. 
Hagnaður félagsins á tímabilinu nam 2.226 millj. kr., samanborið við tap að
fjárhæð 11.682 millj. kr. allt árið 2008. Þegar tekið er tillit til tekna og
gjalda sem færð eru á eigið fé er heildarhagnaður tímabilsins 2.614 millj. kr.
samanborið við tap að fjárhæð  4.744 millj. kr. á árinu 2008. 			 
Samkvæmt yfirliti um heildarafkomu námu rekstrartekjur HS Orku hf. á tímabilinu
4.357 millj. kr., en voru 5.425 millj. kr. á allt árið áður. Vænt hækkun
rekstrartekna allt árið 2009  nemur 7% frá árinu 2008. Hækkun tekna er að hluta
til vegna þjónustutekna vegna veittrar þjónustu til HS Veitna hf., en félögin
hafa gert þjónustusamning sín á milli þar að lútandi. 
Framleiðslukostnaður og kostnaðarverð sölu nam 3.024 millj. kr., samanborið við
3.066 millj. kr. allt árið áður.  Hækkun framleiðslukostnaðar og kostnaðarverðs
sölu stafar mest megnis vegna fyrstu hreinsunar borhola á Reykjanesi auk
kostnaðar vegna veittrar þjónustu við HS Veitur hf.				 
Í júlí 2009 seldi félagið land og hitaréttindi til Reykjanesbæjar.
Söluverðmætið nam 854 millj. kr. og söluhagnaður nam 784 millj. kr. 		 
Annar rekstrarkostnaður nam 382 millj. kr. samanborið við 376 millj. kr. allt
árið áður. Meðal annars rekstrarkostnaðar er virðisrýrnun óefnislegra eigna að
fjárhæð 142 millj. kr. Annar rekstrarkostnaður án virðisrýrnunar nam 240 millj.
kr. Vegna núverandi markaðsaðstæðna búast stjórnendur félagsins við að
framtíðarverkefnum félagsins verði frestað og eftir mat endurheimtanlegrar
fjárhæðar þróunarkostnaðar virðisrýrði félagið að fullu þróunarkostnað vegna
Hallkellshóla. 
Hrein fjármagnsgjöld voru 615 millj. kr. á tímabilinu samanborið við hrein
fjármagnsgjöld að fjárhæð 15.516 millj. kr. allt árið áður.  Veiking íslensku
krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum leiddi til 1.225 millj. kr. gengistaps,
en allt árið áður nam gengistap 10.408 millj. kr. Vaxtagjöld námu 791 millj.
kr. fyrstu 9 mánuði ársins 2009 miðað við 1.037 millj. kr. allt árið áður.
Enginn fjármagnskostnaður var eignfærður á árinu samanborið við 34 millj. allt
árið áður. Tekjur af gangvirðisbreytingum innbyggðra afleiða félagsins námu
2.157 millj. kr. á tímabilinu samanborið við gjöld að fjárhæð 2.687 millj. kr.
allt árið áður.  	 
Hlutdeild í hagnaði hlutdeildarfélaga nam 229 millj. kr. samanborið við tap að
fjárhæð 264 millj. kr. allt árið áður. Þýðingarmunur hlutdeildarfélaga var
jákvæður um 415 millj. kr. og er færður meðal annarrar heildarafkomu.
Þýðingarmunurinn er tilkominn vegna breytingar á uppgjörsmynt
hlutdeildarfélags. 
Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir HS Orku hf.  þann 30. september 2009
bókfærðar á 37.750 millj. kr. Eignir hækkuðu um 871 millj. kr. frá ársbyrjun.	 
Skuldir HS Orku hf. nema 28.774 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, þar af
eru skammtímaskuldir 5.581 millj. kr.  Skuldir hafa lækkað um 1.770 millj. kr.
frá áramótum. Af því nemur lækkun langtímaskulda 7 millj. kr. Skammtímaskuldir
lækka um 1.762 millj. kr., sem skýrist að mestu leyti af greiðslu vaxtaberandi
skammtímalána og greiðslu skammtímaskulda vegna framkvæmdakostnaðar. 		 
Félagið uppfyllir ekki fjárhagsskilyrði í lánasamningum um lágmarks
eiginfjárhlutfall og rekstrarhlutföll. Félagið hefur nú náð samkomulagi við NIB
(Norræna fjárfestingabankann) og CEB (Þróunarbanka Evrópu) og samkomulag við
EIB (Fjárfestingarbanki Evrópu) er á lokastigi. Í samræmi við samkomulagi munu
bankarnir afsala sér rétti til gjaldfellingar vegna brota á upphaflegum
fjárhagsskilyrðum í ákveðin tíma og skipta þeim út fyrir ný fjárhagsskilyrði
til skamms tíma. Lánasamningar með brotin fjárhagsskilyrði eru sett fram til
samræmis við upphafleg samningsákvæði. 
Eigið fé HS hf. nam 8.576 millj. kr. í lok tímabilsins.  Eiginfjárhlutfall var
23,0% en var 16,3% í ársbyrjun. Í ársbyrjun var eigið fé 5.934 millj. kr.
Hækkun eigin fjár skýrist af hagnaði tímabilsins og þýðingarmun vegna
hlutdeildarfélags.	
Horfur um rekstur HS Orku hf. eru góðar að því gefnu að samningar við alla
lánadrottna félagsins um ný fjárhagsskilyrði og fleira um núverandi lán
fyrirtækisins.  Umsvif fara vaxandi og áfram verður unnið að aukinni
orkuvinnslu. Unnið verður að rannsóknum á frekari virkjunarkostum og er verið
að afla margvíslegra leyfa í því skyni. Stærstu einstöku verkefnin eru
rannsóknarboranir og annar undirbúningur fyrir nýjar virkjanir og aukin
niðurdæling. "Helstu fjárhæðir úr árshlutareikningnum eru sem hér segir í þús. kr. Sjá
viðhengi.