|
|||
![]() |
|||
2013-05-15 16:49:00 CEST 2013-05-15 16:49:01 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 15 0408Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 15 0408 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 14:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 15 0408: Alls bárust 9 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.825 m.kr. að nafnverði. 9 tilboðum var tekið fyrir 5.825 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,825 (4,03% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 fimmtudaginn 16. maí. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 17. maí 2013. |
|||
|