2024-06-28 20:02:00 CEST

2024-06-28 20:02:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki: Niðurstöður könnunar- og matsferlis fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (SREP)


Viðbótar eiginfjárkrafa Arion banka undir stoð II (e. Pillar II) er 1,8% frá og með 30. júní 2024 sem er lækkun sem nemur 0,3 prósentustigum frá fyrra ári.

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands leggur mat á áhættuþætti í starfsemi fjármálafyrirtækja í könnunar- og matsferli (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP) og með hvaða hætti fjármálafyrirtæki meðhöndlar þá í starfseminni, sbr. lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Hjá þeim fjármálafyrirtækjum sem metin eru kerfislega mikilvæg fer slíkt mat fram árlega.
 
Niðurstaða fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á mati á áhættuþáttum í starfsemi Arion banka er að Arion banki hf. skuli frá og með 30. júní 2024 viðhalda viðbótarkröfu um eiginfjárgrunn sem nemur 1,8% af áhættugrunni, sem er lækkun sem nemur 0,3 prósentustigum frá fyrra ári.
 
Heildareiginfjárkrafa Arion banka að teknu tilliti til eiginfjárauka lækkar sem því nemur og verður því 19,5%.