|
||||||||||||
![]() |
||||||||||||
2018-01-15 12:56:36 CET 2018-01-15 12:57:37 CET REGULATED INFORMATION Félagsbústaðir hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLeiðrétting: Félagsbústaðir: Niðurstaða skuldabréfaútboðs - Frétt birt 2018-01-11 20:15:09Leiðrétting á frétt sem birt var 2018-01-11 kl. 20:15:09 CET. Leiðréttingin er útskýrð í töflu hér að neðan og henni fylgir svo leiðréttur texti.
Lokuðu útboði Félagsbústaða hf. á skuldabréfum þann 11. janúar 2018 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í tveimur nýjum flokkum, FB100366 og FB100366u. Alls bárust tilboð í FB100366 að nafnvirði 2.460 m.kr. á bilinu 2,47% - 3,20%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 800 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,77%. Alls bárust tilboð í FB100366u að nafnvirði 1.120 m.kr. á bilinu 2,84% - 3,40%. Ákveðið var að hafna öllum tilboðum. Stefnt er að töku skuldabréfaflokksins til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. hefur umsjón með fyrirhugaðri skráningu en bankinn hafði einnig umsjón með ofangreindu útboði skuldabréfanna. Gjalddagi áskrifta, afhending bréfa og skráning á Aðalmarkað Nasdaq Iceland er fyrirhuguð 22. janúar næstkomandi en Nasdaq Iceland tilkynnir um fyrsta viðskiptadag með eins dags fyrirvara.
Nánari upplýsingar veitir: Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf., sími 444-7337, verdbrefamidlun@arionbanki.is
|
||||||||||||
|