2010-10-21 11:57:58 CEST

2010-10-21 11:58:54 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

-Lokasamningar vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar undirritaðir


Þann 12. ágúst 2010 tilkynnti Icelandair Group hf. að samkomulag hafi náðst um
fjárhagslega endurskipulagningu félagsins. Skjalagerð hefur hins vegar tekið
mun lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir, en í morgun voru allir
samningar undirritaðir. 

Endurskipulagningin á sér stað með þrennum hætti:

Í fyrsta lagi kemur nýtt hlutafé sem verður greitt inn með reiðufé eftir að
skráningarlýsing hefur verið birt í kauphöll. Fjárfestar hafa skráð sig fyrir
um 5,5 milljörðum króna að markaðsvirði í nýju hlutafé á genginu 2,5 sem
jafngildir ríflega 2,2 milljörðum nýrra hluta í Icelandair Group hf. 

Í öðru lagi hafa stærstu lánveitendur Icelandair Group breytt skuldum að
fjárhæð 3,6 milljarðar króna í hlutafé miðað við gengið 5, þannig að þeir munu
skrá sig fyrir 720 milljón nýjum hlutum. 

Heildarhlutafjárhækkun mun þannig nema um 2,9 milljörðum nýrra hluta að
nafnvirði. 

Í þriðja lagi lækka vaxtaberandi skuldir um ríflega 10 milljarða króna með
yfirfærslu og sölu á tilteknum eignum sem ekki eru hluti af kjarnastarfsemi
félagsins. Í kaupsamningum vegna eignasölunnar, sem undirritaðir voru í morgun,
eru hefðbundnir fyrirvarar um og frágang formsatriða í tengslum við söluna, svo
sem samþykki opinberra aðila, eftir því sem við á. Söluhagnaður vegna sölu
eignanna nemur um 3,2 milljörðum króna en að teknu tilliti til skatta og
þýðingarmunar eru áhrif á eigið fé jákvæð um 0,5 milljarða króna. 

Samtals lækka vaxtaberandi skuldir um tæpa 14 milljarða króna og verða þær um
26 milljarðar króna eftir endurskipulagninguna. 

Icelandair Group hf. fyrirhugar að safna u.þ.b 2,5 milljörðum króna til
viðbótar með útgáfu nýs hlutafjár. Tilkynnt verður síðar um fyrirkomulag og
tímasetningu þess útboðs. 

Icelandair Group hafði áformað að birta uppgjör 3. ársfjórðungs í viku 44.
Vegna vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu hefur uppgjörsvinna tafist og
félagið hefur ákveðið að fresta birtingu uppgjörs til 15. nóvember. 

Starfsemi samstæðunnar hefur að mestu gengið vel að undanförnu og betur en
áætlanir. Félagið hefur því hækkað EBITDA spá ársins 2010 úr 8,5 milljörðum
króna í 9,5 milljarða króna. 

Frekari upplýsingar veita:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími 665-8801