|
|||
2014-03-17 10:26:46 CET 2014-03-17 10:27:11 CET REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Vodafone stefnir Tali til greiðslu viðskiptaskuldarVodafone (Fjarskipti hf.) hefur stefnt Tali (IP-Fjarskiptum ehf.) fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu reikningsskuldar, vegna fjarskiptaþjónustu sem Vodafone veitti Tali á grundvelli samninga á árunum 2011 og 2012. Krafa Vodafone nemur rúmlega 117 milljónum króna og krefst félagið þess að fá þá upphæð greidda auk vaxta. Til grundvallar kröfunni liggja reikningar frá Vodafone sem Tal hefur ekki greitt, auk eftirstöðva af reikningum sem Tal hefur greitt að hluta. Það er afstaða Vodafone að fyrirliggjandi samningar milli félaganna feli í sér ótvíræða greiðsluskyldu af hálfu Tals og að málatilbúnaður Vodafone byggi á sterkum lagalegum grunni. Rétt er að taka fram að óvissa ríkir um niðurstöðu dómsmálsins. Verði Tal dæmt til greiðslu á framangreindri kröfu Vodafone mun það hafa jákvæð áhrif á fjárhag Vodafone. Áður uppgefið um málið í skráningarlýsingu Fjarskipta hf. (bls. 17 í útgefandalýsingu) dags. 19. nóvember 2012:"Ágreiningur er uppi á milli Fjarskipta og Tals vegna ógreiddra reikninga sem Fjarskipti hafa gefið út á hendur Tali. Forsaga málsins er sú að Tal og Fjarskipti gerðu með sér endursölusamning um að Tal keypti tiltekna fjarskiptaþjónustu af Fjarskiptum í heildsölu. Á árinu 2011 kom upp ágreiningur milli félaganna varðandi reikninga sem Fjarskipti gáfu út á hendur Tali vegna umframgagnamagns, þ.e. kaupa Tals á gagnaflutningi umfram tiltekin mörk, og vegna innsláttar pantana en samkvæmt samningi fyrirtækjanna hafa Fjarskipti umsjón með innslætti pantana vegna viðskiptavina Tals gegn gjaldi. Á fyrri hluta árs 2012 greiddi Tal hluta af þeim reikningum sem ágreiningur ríkir um en eftir stendur ágreiningur um fimm reikninga vegna ársins 2011. Til viðbótar við þær fjárhæðir sem um ræðir hafa Fjarskipti uppi kröfu á hendur Tali um greiðslu áfallandi dráttarvaxta, innheimtu- og málskostnaðar. Þann 31. mars 2011 gaf Tal út reikning á hendur Fjarskiptum sem fyrirtækið kveðst byggja á kröfu um endurgreiðslu vegna meintrar ofrukkunar Fjarskipta vegna fastlínuþjónustu í heildsölu. Stjórnendur Fjarskipta telja kröfuna tilhæfulausa. Fjarskipti undirbúa nú málshöfðun á hendur Tali til greiðslu þeirra fimm krafna frá árinu 2011 sem ágreiningur er um og að framan er lýst. Reikna má með að Tal krefjist sýknu af kröfum Fjarskipta og hafi jafnframt uppi gagnkröfu á hendur Fjarskiptum vegna framangreinds reiknings frá 31. mars 2011. Það er afstaða Fjarskipta að samkvæmt fyrirliggjandi samningum Fjarskipta og Tals sé greiðsluskylda Tals ótvíræð. Fari ágreiningur Fjarskipta og Tals fyrir dóm er þó ekki hægt að ábyrgjast hver lokaniðurstaða málsins verður. Versta mögulega niðurstaðan fyrir Fjarskipti væri sú að félagið tapaði öllum kröfum sínum á hendur Tali auk þess að vera dæmt til að endurgreiða Tali fyrrnefnda kröfu þeirra. Verði niðurstaðan sú gæti slíkt haft í för með sér neikvæð áhrif á rekstrarhagnað félagsins að fjárhæð 43,2 m.kr. Besta mögulega niðurstaðan fyrir Fjarskipti væri sú að félaginu væru dæmdar fullar greiðslur úr hendi Tals auk þess sem framangreindri kröfu Tals á hendur Fjarskiptum yrði vísað frá. Í slíku tilviki væru heildaráhrifin á rekstrarhagnað félagsins jákvæð um 109,3 m.kr. Til viðbótar við þá fimm reikninga sem að framan greinir, sem eru vegna ársins 2011, hefur Tal haldið eftir hluta af greiðslum vegna reikninga útgefnum á árinu 2012. Vanskilin gætu haft neikvæð áhrif á rekstrarhagnað Fjarskipta að fjárhæð 21 m.kr. Útistandandi kröfur vegna ársins 2012 munu fara í hefðbundið innheimtuferli af hálfu Fjarskipta en kröfur vegna ársins 2011 munu fara fyrir dómstóla líkt og að framan greinir. Aðilar hafa undirritað samkomulag þess efnis að Tal hætti alfarið í viðskiptum við Fjarskipti þann 13. desember 2012. Tal hefur þó möguleika á framlengingu þess tímabils til 13. febrúar 2013 svo fremi að beiðni þess efnis berist Fjarskiptum fyrir 1. desember 2012." Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem málinu vindur fram. [HUG#1769065] |
|||
|