|
|||
![]() |
|||
2010-05-21 10:40:43 CEST 2010-05-21 10:41:42 CEST REGLERAD INFORMATION Eignarhaldsfélagið Farice ehf. - FyrirtækjafréttirOpera Software flytur gagnavinnslu sína til Íslands• Fyrsta erlenda fyrirtækið sem semur við íslenskt gagnaver • Sækjast eftir stöðugu framboði af grænni orku • Starfsemi Opera á Íslandi mun valda stórfelldri aukningu á gagnaflutningum um sæstrengina FARICE og DANICE. • Thor Data Center er umhverfisvænasta gagnaver heims - það verður gangsett í dag • Fleiri erlend stórfyrirtæki eru í viðræðum um flutning gagna sinna í gagnaver Thor Data Center á Íslandi Í dag klukkan tólf á hádegi munu forseti Íslands og iðnaðarráðherra gangsetja fyrsta íslenska gagnaverið, við Steinhellu í Hafnarfirði. Það er íslenska fyrirtækið Thor Data Center sem byggt hefur og reka mun gagnaverið. Fyrirtækið er stofnað af nokkrum íslenskum frumkvöðlum með áratugareynslu úr tölvugeiranum og með þátttöku íslenskra framtaksfjárfesta. Heimsþekkt tölvufyrirtæki flytur gagnavinnslu sína til Íslands Norska fyrirtækið Opera Software sem er heimsþekkt fyrirtæki í tölvugeiranum og hefur verið framarlega í þróun vefvafra síðastliðin 15 ár skrifar við þetta sama tilefni undir samning um að flytja stóran hluta af gagnavinnslu sinni til Íslands. Jón S. von Tetzchner stofnandi Opera Software kemur sérstaklega hingað til lands og mun undirrita samningana fyrir hönd fyrirtækis síns. Annars vegar er um að ræða samkomulag við Thor Data Center um gagnageymsluna hins vegar við íslenska fjarskiptafyrirtækið E-Farice um flutning gagnanna um sæstrengi á milli Noregs og Íslands og bækistöðva Opera sem eru víða um heim. Jón er íslenskur að hálfu og bjó hér á landi þar til hann hélt til háskólanáms í Noregi. Hann stofnaði Opera fyrir réttum 18 árum og er fyrirtækið nú með yfir 110 milljónir notenda um heim allan. Ný tækni styttir uppbyggingartíma gagnavera Undirbúningur að stofnun gagnaversins hefur farið fremur hljótt en hann hófst af alvöru fyrir aðeins 18 mánuðum síðan. Þessi skammi tími sem liðinn er frá stofnun fyrirtækisins og þar til að gagnageymsla fyrir erlenda viðskiptavini gat hafist, var mögulegur vegna nýtingar á nýrri tækni í hönnun gagnavera sem rutt hefur sér til rúms á síðustu tveimur árum. Sú tækni felur í sér að gagnaverin eru samsett af fleiri minni einingum (svokölluðum gagnagámum) og býður það upp á meiri sveigjanleika í umfangi og uppbyggingu. Microsoft, Google og Hewlett-Packard eru á meðal fyrirtækja sem veðjað hafa á þessa útfærslu gagnavera og slík ver rísa nú víða um heim. Thor DC er í samstarfi við spænskt hátæknifyrirtæki sem náð hefur forystu í framleiðslu slíkra gáma og hefur það sýnt uppbyggingunni hér á landi mikinn áhuga. Umhverfisvænasta gagnaver í heimi Frá fyrsta degi sem starfsemi þess hefst telst Thor gagnaverið vera umhverfisvænasta gagnaver í heimi. Bæði er það vegna þeirrar tækni sem það notar og vegna þess að það nýtir einungis endurnýjanlega orku. Gagnaverið hefur tryggt sér 3,2 megawatta raforku frá HS Orku á Suðurnesjum og allt að 19,2 megawött ef þörf verður á. Gagnaverið Thor er fyrsta gagnaverið af þessum toga sem tekið er í notkun á Íslandi og Opera Software er fyrsta erlenda stórfyrirtækið sem færir gagnavörslu sína til Íslands. Miklar vonir hafa verið bundnar við þennan iðnað hér á landi og telja forsvarsmenn Thors Data Center fullt tilefni til bjartsýni. Von er á tilkynningum um fleiri erlenda samninga á næstunni og hafa upphaflegar áætlanir fyrirtækisins um hraða uppbyggingarinnar í Hafnarfirði verið endurskoðaðar. Búist er við að núverandi húsnæði verði orðið of lítið strax á næsta ári. Jón S. von Tetzchner sagði í tilefni af undirritun samningsins: Ástæða þess að Opera Software ákveður að semja við Thor Data Center er sú að fyrirtækið getur boðið okkur upp á 100% endurnýjanlega orku. Framboð á orku á Íslandi verður fyrirsjáanlega stöðugra en víða annars staðar á næstu árum og sú staðreynd í bland við þá frábæru tæknikunnáttu sem er til staðar hjá Thor DC er megin ástæða þess að Opera Software hefur tekið ákvörðun um að hýsa gögn sín hér á landi. Það er jafnframt mikið ánægjuefni, ekki síst fyrir mig persónulega vegna tengsla minna við Ísland, að geta átt þátt í að styrkja efnahag Íslands á þeirri stundu þegar landið þarfnast þess mest við. Ég hlakka til að eiga áframhaldandi samstarf við frumkvöðlana hjá Thor DC og fylgjast með uppbyggingu gagnaversiðnaðar hér á landi. Ljóst er að Íslendingar eiga mikil tækifæri á þessu sviði. Nýsköpun og þor er rétta leiðin út úr kreppunni og Ísland þarf einskis að kvíða ef þetta verða áherslurnar. (Jón S. von Tetzchner er fús að veita fjölmiðlum viðtöl meðan hann er á landinu) Gangsetningarathöfnin fer sem áður sagði fram á hádegi í dag, föstudag, við Steinhellu í Hafnarfirði að viðstöddum gestum. Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra munu flytja stutt ávörp og í sameiningu svo tengja kapla við gagnaverið. Þá verða samningarnir við Opera Software undirritaðir og síðan verður hægt að skoða gagnaverið að innan og fá nánari kynningu frá starfsmönnum Thors Data Center. Nánari upplýsingar veita: Jón S. von Tetzchner, stofnandi Opera AS s. +47 40 40 14 40 Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Thor DC s. 662-5005 Guðmundur Gíslason, stjórnarformaður Thor DC s. 896-0426 Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri E-Farice s. 893-4840 |
|||
|