2013-01-30 17:10:09 CET

2013-01-30 17:11:12 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nýherji hf. - Ársreikningur

Ársuppgjör Nýherja fyrir árið 2012


111 mkr heildarhagnaður af rekstri Nýherja hf.

Helstu niðurstöður:

  -- EBITDA 481 mkr og heildarhagnaður 111 mkr á árinu 2012.
  -- Nýherji hf. móðurfélag, TM Software og Dansupport A/S skila ágætri afkomu.
  -- Tap á rekstri Applicon fyrirtækjanna á árinu.
  -- Tekjur af eigin hugbúnaðarþróun um 750 mkr á árinu og afkoma góð á því
     sviði.
  -- Virðisrýrnun viðskiptavildar 92 mkr og tekjufærð skatteign 210 mkr.



Þórður Sverrisson, forstjóri:

„Afkoma af rekstri Nýherja á innlendum markaði var ágæt og samkvæmt áætlunum á
árinu 2012. Áhersla hefur verið á þróun nýrra lausna fyrir viðskiptavini, bæði
á sviði hugbúnaðar og tækniþjónustu. Tekjur af sölu eigin hugbúnaðar námu 750
mkr og skilaði ágætri afkomu. Sala á Tempo hugbúnaði, sem TM Software hefur
þróað og seldur er á erlendum mörkuðum, vegur þar þyngst. Afkoma vörusölu var
góð þrátt fyrir minni heildartekjur. 

Applicon félögin erlendis voru rekin með tapi á árinu, sem einkum má rekja til
kostnaðarsamrar uppsetningar sem Applicon í Svíþjóð hefur unnið að fyrir
sænskan banka. Applicon í Danmörku var rekið með halla framan af ári en skilaði
hagnaði á síðasta ársfjórðungi. Afkoma Applicon félaganna er óviðunandi, en við
væntum þess að eftirspurn eftir SAP lausnum aukist á næstu misserum og styrkist
þá einnig rekstur Applicon félaganna.“ 




Nánari upplýsingar

Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í síma +354 893 3630.