|
|||
2014-07-17 00:59:56 CEST 2014-07-17 01:00:50 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Vegna ákvörðunar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA)Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) tilkynnti í dag um formlega rannsókn á hugsanlegri ríkisaðstoð í tengslum við útboð leigusamninga um afnot af ljósleiðara, áður í umsjá NATO, sem Vodafone tók þátt í árið 2008. Samanber fyrri tilkynningu Fjarskipta hf., dags. 28. janúar 2014, eru Fjarskipti ekki beinn aðili málsins, sem rekið er á milli Eftirlitsstofnunar EFTA og íslenska ríkisins. Í janúar síðastliðnum ógilti EFTA-dómsstóllinn fyrri ákvörðun ESA um að ekki þætti tilefni til að opna á slíka rannsókn. Ákvörðunin nú felur ekki í sér endanlega niðurstöðu í málinu og gæti ESA að lokinni rannsókn komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé um að ræða ríkisaðstoð eða að ríkisaðstoðin sé í samræmi við EES samninginn að hluta eða öllu leyti. Það er afstaða Fjarskipta að ekki sé um ólögmæta ríkisaðstoð að ræða þar sem samningur félagsins um leigu á téðum ljósleiðara hafi verið gerður á grundvelli útboðs. Stjórnendur félagsins munu fylgjast með framvindu rannsóknarinnar og vera málsaðilum innan handar sé þess óskað. Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem málinu vindur fram. [HUG#1828351] |
|||
|