|
|||
2022-07-04 16:56:10 CEST 2022-07-04 16:56:10 CEST REGULATED INFORMATION Hagar hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsHagar hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunarÁ aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 1. júní 2022 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Haga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Áætlunin mun hefjast þann 5. júlí 2022. Endurkaupin munu að hámarki nema 113.267.608 hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 500 milljónir króna. Félagið á enga eigin hluti í dag. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins, þann 1. júní 2023, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í höndum Fossa fjárfestingarbanka hf. og verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, og eftir atvikum II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags í Kauphöll Nasdaq Ísland verða að hámarki 398.311 hlutir, sem jafngildir 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á NASDAQ OMX á Íslandi í júní 2022. Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki nema hæsta verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða tilboði í Kauphöllinni, hvort sem hærra er. Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500 eða á geg@hagar.is |
|||
|