|
|||
2012-06-22 13:45:17 CEST 2012-06-22 13:46:19 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 14 0314 og RIKB 16 1013Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 14 0314 og RIKB 16 1013 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 14 0314: Alls bárust 9 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.850 m.kr. að nafnverði. 2 tilboðum var tekið fyrir 1.350 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,500 (4,43% ávöxtunarkröfu). RIKB 16 1013: Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.800 m.kr. að nafnverði. 2 tilboðum var tekið fyrir 6.000 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 103,750 (5,00% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 26. júní. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 27. júní 2012. |
|||
|