2016-06-03 16:01:15 CEST

2016-06-03 16:01:15 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Niðurstöður hluthafafunda

Niðurstöður aðalfundar Haga hf. 3.júní 2016


Meðfylgjandi má sjá niðurstöður aðalfundar Haga hf. sem haldinn var á Hilton
Reykjavík Nordica þann 3. júní 2016. Fundurinn hófst kl. 09:05. Tillögur
fundarins voru samþykktar svohljóðandi: 



  1. Ársreikningur (dagskrárliður 2)

Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda var
lagður fram og samþykktur samhljóða. 



  1. Ráðstöfun hagnaðar (dagskrárliður 3)

Tillaga stjórnar Haga hf. um greiðslu arðs sem nemur 1,70 krónu á hlut var
samþykkt samhljóða. Arðsréttindadagur verður 7. júní 2016, arðleysisdagur 6.
júní 2016 og útborgunardagur 24. júní 2016. 



  1. Þóknun til stjórnarmanna (dagskrárliður 4)

Tillaga stjórnar Haga hf. um að stjórnarlaun hækki um 10%,  þ.e.
stjórnarformaður fær greitt kr. 550.000,- á mánuði og stjórnarmenn kr.
275.000,- á mánuði var samþykkt samhljóða. Auk þess var samþykkt samhljóða
tillaga stjórnar um óbreytt laun í undirnefndum stjórnar, þ.e. formaður fær
greitt kr. 140.000,- á mánuði og nefndarmenn kr. 70.000,- á mánuði. 



  1. Starfskjarastefna (dagskrárliður 5)

Fyrir fundinum lá tillaga að starfskjarastefnu félagsins, en hún var óbreytt
frá áður samþykktri starfskjarastefnu. Starfskjarastefnan var samþykkt
samhljóða. 



  1. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda (dagskrárliður 6)

Eftirtaldir aðilar voru kosnir í stjórn félagsins til næsta aðalfundar:

            Erna Gísladóttir, kt. 050568-2969

            Kristín Friðgeirsdóttir, kt. 090871-5369

            Salvör Nordal, kt. 211162-5119

            Sigurður Arnar Sigurðsson, kt. 090164-2529

            Stefán Árni Auðólfsson, kt. 210772-4729



Fimm framboð bárust og var því sjálfkjörið. Allir frambjóðendur voru áður í
stjórn félagsins. 



Samþykkt var samhljóða að endurskoðunarskrifstofan KPMG ehf., kt. 590975-0449,
verði endurskoðandi félagsins fyrir komandi rekstrarár. 



  1. Ákvörðun um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum (dagskrárliður 7)

Fyrir aðalfundi lá tillaga frá stjórn Haga hf. um að félaginu verði heimilt að
kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10% af heildarhlutafé félagsins, í þeim
tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp
formlega endurkaupaáætlun, skv. 116. gr. laga um verðbréfaviðskipti eða á
grundvelli 1. tölul. 3. mgr. 115. gr. og 2. mgr. 119. gr. laga um
verðbréfaviðskipti og reglugerða sem settar eru á grundvelli sömu ákvæða.
Tillagan var samþykkt samhljóða.