2012-04-17 19:10:53 CEST

2012-04-17 19:11:54 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Aðgerðir Lánamála ríkisins í gjaldeyrisútboði Seðlabanka Íslands 9. maí 2012


Í tilkynningu Lánamála ríkisins þann 28. mars 2011 kom fram að kaupendur
gjaldeyris í væntanlegum útboðum Seðlabanka Íslands getu selt ríkissjóði
ríkisvíxla og ríkisbréf með gjalddaga fyrir árslok 2013 til fjármögnunar á
gjaldeyriskaupum. 

Gjaldeyrisviðskiptin munu fara fram með milligöngu viðskiptavaka á
gjaldeyrismarkaði sem eru Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn. Seðlabanki
Íslands hefur tilkynnt að næsta gjaldeyrisútboð verði haldið 9. maí
næstkomandi. 

Aðilar sem eiga samþykkt tilboð í gjaldeyrisútboði Seðlabankans eiga þess kost
að selja Lánamálum eftirfarandi ríkisverðbréf miðað við uppgjör 11. maí 2012.
Kaupverð á ríkisverðbréfunum verður tilkynnt eftir kl. 16.00 þann 3. maí 2012. 

Flokkar     
------------
RIKV 12 0515
------------
RIKV 12 0615
------------
RIKV 12 0716
------------
RIKV 12 0815
------------
RIKV 12 0917
------------
RIKV 12 1015
------------
RIKB 12 0824
------------
RIKB 13 0517
------------

  Viðskiptavakar sem ætla að hafa milligöngu um gjaldeyrisviðskipti með
framangreindum ríkisskuldabréfum þurfa að upplýsa Lánamál ríkisins um það eigi
síðar en kl. 09.00 þann 10. maí. Ríkisverðbréfin þurfa svo að berast Lánamálum
fyrir klukkan 11.00 þann 11. maí. Greiðslur eiga sér stað eftir afhendingu
bréfanna og eigi síðar en klukkan 16.00 sama dag. 

Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9633.