|
|||
2010-05-10 15:06:36 CEST 2010-05-10 15:07:36 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Norðurþing - ÁrsreikningurÁrsreikningur 2009Ársreikingur Norðurþing ársreikningur 2009 - jákvæður grunnrekstur / traust framtíð - Ársreikningur sveitarfélagsins Norðurþings er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A - hluta annars vegar og B - hluta hins vegar. Til A - hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð sem rekur alla almenna málaflokka, Eignasjóð- og Þjónustumiðstöð Norðurþings. Til B - hluta teljast fjárhagslega sjálfstæðar rekstrareiningar sem að hluta eða öllu leyti eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Rekstrareiningarnar sem um ræðir eru: Félagslegar íbúðir, Fráveita Norðurþings, Vatnsveita Norðurþings, Hafnarsjóður Norðurþings, Orkuveita Húsavíkur ehf., Sorpsamlag Þingeyinga ehf., og Fjárfestingafélag Norðurþings ehf. Góður rekstur - miklar afskriftir Rekstur sveitarfélagsins gekk vel og mun betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða í A hluta fyrir afskriftir var jákvæð um 60 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða samstæðu fyrir afskriftir var jákvæð um 411 milljónir króna. Að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða er rekstrarniðurstaða samstæðunnar neikvæð um 318 milljónir króna. Þar af er 200 m.kr. króna auka afskrift vegna virðisrýrnunar Orkustöðvar Orkuveitu Húsavíkur ehf. Rekstrarniðurstaða samstæðu Norðurþings er því betri en sem nemur 407 m.kr. króna miðað við áætlanir ársins. Þess skal sérstaklega getið að áætlanir í sveitarfélaginu Norðurþingi eru ekki endurskoðaðar á rekstrarárinu. Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri samstæðunnar 187 m.kr. og handbært fé frá rekstri 186 m.kr. króna. Afborgun langtímalána nam 444 m.kr. Ný langtímalán námu 332 m.kr. Fjárfestingar í eignarhlutum í félögum nam 113 m.kr. Handbært fé í árslok var 190 m.kr. Dulin verðmæti Sveitarfélagið á í gegnum Orkuveitu Húsavíkur ehf. um þriðjungshlut í Þeistareykjum ehf. Í lok árs 2009 áttu sér stað viðskipti með verulegan hlut í félaginu á gengi sem er langt umfram bókfært verðmæti í reikningsskilum Norðurþings. Áætlað söluverðmæti á eignarhlut Orkuveitu Húsavíkur ehf. í Þeistareykjum ehf. nemur allt að 40% af vaxtaberandi skuldum Norðurþings. Efnahagur - lykiltölur Eignir sveitarfélagsins í efnahagsreikningi eru bókfærðar á 6.430 m.kr., þar af eru veltufjármunir 560 m.kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nema samkvæmt efnahagsreikningi 6.142 m.kr., þar af eru lífeyrisskuldbindingar 1.130 m.kr. Bókfært eigið fé nemur 287 m.kr. í árslok. Eiginfjárhlutfall A hluta er 30% en samstæðu 4,5%. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í Sveitarstjórn Norðurþings 29. apríl og 18. maí nk. Nánari upplýsingar veitir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri í síma 464-6100. |
|||
|